#

Hversu æskilegur er jöfnuður?

Skoða fulla færslu

Titill: Hversu æskilegur er jöfnuður?Hversu æskilegur er jöfnuður?
URI: http://hdl.handle.net/10802/3505
Útgefandi: Viðskiptaráð Íslands
Útgáfa: 15.03.2007
Ritröð: Skoðun Viðskiptaráðs ;
Efnisorð: Jafnaðarstefna
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://www.vi.is/files/1453831898Jofnudur.pdf
Tegund: Smáprent
Útdráttur: Mikið hefur farið fyrir umræðu um jöfnuð og þróun hans undanfarið. Þar hafa ýmsir fræðimenn sem og stjórnmálamenn lagt orð í belg og niðurstöðurnar orðnar ámóta margar og álitsgjafarnir. Aðferðafræði spilar þar stærsta hlutverkið enda auðvelt að skapa þær niðurstöður sem er óskað eftir séu gögn og forsendur aðlöguð samkvæmt því. Þrátt fyrir þessa umfangsmiklu umfjöllun hafa ákveðin atriði gleymst eða notið lítillar athygli. Það veigamesta af þeim hlýtur að vera hversu æskilegt hugtak jöfnuður er.

Aðgerðum til aukins jafnaðar fylgja ýmsar aukaverkanir. Hugmyndir um að knýja fram meiri jöfnuð með aukinni skattlagningu á fyrirtæki og fjármagnseigendur eru afar skammsýnar og varasamar. Sú mikla hagsæld sem við höfum búið við undanfarin ár á ekki síst rætur sínar að rekja til hagfellds fyrirtækja- og fjárfestingarumhverfis. Því er mikilvægt að viðhalda góðu rekstrarumhverfi enda hefur þessi framþróun skilað sér til allra sviða samfélagsins.

Viðskiptaráð hefur ávallt beitt sér fyrir því að skattkerfi landsins sé eingöngu nýtt til að fjármagna velferðarkerfi og samfélagsinnviði sem sátt er um að allir njóti aðgangs að. Skattkerfinu er ekki ætlað að jafna út tekjur með endurdreifingu fjármuna. Í því samhengi hefur ráðið bent á kosti flatra skatta, þar sem einfaldleiki og gagnsæi eru eins og best verður á kosið. Velferðarkerfið skapar þegnum samfélagsins jöfn tækifæri til menntunar, atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar. Þannig er öllum skapaður grundvöllur og hvati til árangurs. Lykilatriðið í þessu samhengi er að jöfn tækifæri ættu að vera markmiðið, ekki jöfnuður.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
1453831898Jofnudur.pdf 155.1Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta