#

Komum póstinum í réttar hendur

Skoða fulla færslu

Titill: Komum póstinum í réttar hendurKomum póstinum í réttar hendur
URI: http://hdl.handle.net/10802/3497
Útgefandi: Viðskiptaráð Íslands
Útgáfa: 19.09.2008
Ritröð: Skoðun Viðskiptaráðs ;
Efnisorð: Einkavæðing; Póstþjónusta
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://www.vi.is/files/214292309posturinn.pdf
Tegund: Smáprent
Útdráttur: Fyrr á þessu ári fagnaði Íslandspóstur stórafmæli en þá voru tíu ár liðin frá því fyrirtækið tók til starfa sem sjálfstætt hlutafélag í eigu ríkisins. Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun fyrirtækisins hefur félagið endurskilgreint hlutverk sitt og starfsemi á ýmsan máta. Verulega hefur dregið úr vægi almannaþjónustunnar og fyrirtækið hefur sótt inn á nýja markaði. Grunnur þessarar stefnu hefur ekki verið mótaður af stjórnendum fyrirtækisins enda gefa samþykktir þess fullt svigrúm til útvíkkunar á starfseminni.

Í síðasta ársreikningi Íslandspósts voru kynntar áætlanir um byggingu nýrra pósthúsa sem eru sérhönnuð með þarfir flutningafyrirtækis í huga, en þeim er ætlað að auka möguleika fyrirtækisins umtalsvert til sóknar á flutningamarkaði og öðrum tengdum mörkuðum. Árið 2006 festi Íslandspóstur kaup á prentfyrirtækinu Samskipti auk þess sem keyptur var tuttugu prósenta hlutur í hugbúnaðarfyrirtækinu Modernus. Samkvæmt ársreikningi voru þessi kaup liður í þeirri stefnu fyrirtækisins að eflast og vaxa og bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreyttari lausnir. Í báðum tilfellum er opinbert hlutafélag að færa sig inn á markað þar sem þegar ríkir hörð samkeppni á meðal einkaaðila.

Af þessum sökum hafa spurningar vaknað um framtíðarstefnu stjórnvalda varðandi Íslandspóst. Þar skiptir mestu hvort ætlunin sé að reka það áfram sem opinbert hlutafélag og sækja inn á enn fleiri svið þar sem þegar ríkir samkeppni meðal einkaaðila eða hvort ætlunin sé að undirbúa fyrirtækið undir einkavæðingu og stefnt sé á sölu þess í náinni framtíð. Af mögulegum leiðum væri hin síðarnefnda mun skynsamlegri kostur.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
214292309posturinn.pdf 159.1Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta