#

Skattalegar brotalamir : hindra atvinnuuppbyggingu

Skoða venjulega færslu

dc.date.accessioned 2013-10-07T11:36:59Z
dc.date.available 2013-10-07T11:36:59Z
dc.date.issued 2010-07-09
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/3475
dc.description Nánari upplýsingar veita Haraldur I. Birgisson aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Björn Þór Arnarson hagfræðingur Viðskiptaráðs í síma 510-7100. is
dc.description.abstract Í kjölfar bankahrunsins hafa rekstrarskilyrði fyrirtækja versnað til muna. Til að byggja upp trausta atvinnustarfsemi liggur fyrir að umhverfi til rekstrar þarf að vera hagfellt og ekki síður stöðugt. Það er almenn skoðun innan atvinnulífsins að á Íslandi hafi skattlagning rekstrar verið hagkvæm með tiltölulega lágum og breiðum skattstofni með fáum frádráttarliðum. Hvati til að skattleggja tekjur á Íslandi var vegna þessa mikill. Skattstofnar stækkuðu því og samkeppnishæf skattprósenta skilaði þannig háum skatttekjum. Það sama verður ekki sagt um þær viðamiklu breytingar sem hafa átt sér stað undanfarna mánuði og breyttu annars ágætu skattkerfi til muna.

Veruleg óvissa ríkir nú í skattamálum fyrirtækja. Takmarkaðar upplýsingar um væntanlegar tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs fyrir næsta ár bæta ekki úr skák og gera það að verkum að ómögulegt er að gera langtímaáætlanir. Á meðan hvers lags snúningar á skattkerfinu virðast koma til álita hverju sinni hérlendis leggja aðrar þjóðir öðru fremur áherslu á stöðuleika og langtímastefnu. Það hringl sem einkennt hefur skattalöggjöfina hefur auk þess ýtt undir ósamræmi í skattlagningu hérlendis miðað við það sem gerist í samkeppnislöndum. Með því hefur verið gengið þvert á forsendur atvinnuuppbyggingar á Íslandi, sem getur reynst skaðlegt efnahagsþróuninni til lengri tíma litið.

Við þær aðstæður og óvissu sem nú er uppi um fjármögnun íslensku bankanna og getu þeirra til að styðja íslensk fyrirtæki til vaxtar, auk almennrar efnahagslegrar ókyrrðar, er alls óásættanlegt að verið sé að leggja í svo viðamiklar skattkerfisbreytingar án samráðs við atvinnulífið. Eins og Viðskiptaráð hefur áður bent á er óvíst að breytingarnar muni skila tilætluðum árangri til að rétta af halla á opinberum fjárhag. Þvert á móti er hætt við öndverðum áhrifum þannig að þær heildartekjur sem skattleggjast á Íslandi lækki og skatttekjur minnki. Nú ætti því að leggja höfuðáherslu á að skattkerfið verði áfram samkeppnishæft við skattkerfi annarra þjóða og styðji þannig við vöxt atvinnulífs og þá vinnumarkaðar. Áframhaldandi einstefna stjórnvalda í aðra átt mun draga enn frekar úr forsendum öflugrar og fjölbreyttrar atvinnustarfsemi hér á landi.
is
dc.language.iso is
dc.publisher Viðskiptaráð Íslands is
dc.relation.ispartofseries Skoðun Viðskiptaráðs is
dc.relation.uri http://www.vi.is/files/2010.07.09%20Skodun%20-%20Skattalegar%20brotalamir%20net_276842334.pdf is
dc.subject Skattar is
dc.subject Atvinnulíf is
dc.title Skattalegar brotalamir : hindra atvinnuuppbyggingu is
dc.type Skýrsla is


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
2010.07.09 Skod ... otalamir net_276842334.pdf 222.5Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta