#

Ríkisfjármál : samstaða um bætt vinnubrögð

Skoða fulla færslu

Titill: Ríkisfjármál : samstaða um bætt vinnubrögðRíkisfjármál : samstaða um bætt vinnubrögð
URI: http://hdl.handle.net/10802/3474
Útgefandi: Viðskiptaráð Íslands
Útgáfa: 14.06.2010
Ritröð: Skoðun Viðskiptaráðs ;
Efnisorð: Ríkisfjármál
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://www.vi.is/files/2010.06.14%20Skodun%20fjarlog%20nyrri_1283760831.pdf
Tegund: Smáprent
Útdráttur: Fram til þessa hefur stefna ríkisstjórnarinnar í aðlögun ríkisfjármála miðað að því að fara blandaða leið niðurskurðar og tekjuöflunar. Sitt sýnist hverjum um eiginlega framkvæmd stefnunnar og þá einkum hvoru megin áherslan skuli frekar liggja. Viðskiptaráð hefur fyrir sitt leyti gagnrýnt að aðlögunin hafi farið um of fram með tekjuöflun og bent á aðrar leiðir að sama marki. Í þeim tilgangi hefur Viðskiptaráð gefið út tvær skýrslur á undanförnum misserum um fjármál hins opinbera. Sú síðari kom út í desember í fyrra og ber heitið, „Fjármál hins opinbera - aðrar leiðir færar“, en þar eru lagðar fram ítarlegar tillögur að því hvernig megi taka á uppsöfnuðum fjárlagahalla ríkissjóðs með öðrum hætti.

Hugmyndir um hvort ráðast eigi í niðurskurð eða skattahækkanir munu ætíð vera grundvöllur skoðanaskipta í þjóðfélaginu. Skal engan undra að svo sé enda hafa báðar aðgerðir neikvæð áhrif á ólíka hagsmuni tiltekinna hópa. Málefnaleg skoðanaskipti um brýn þjóðfélagsmál sem þetta eru hins vegar mikilvæg, til að dýpka umræðuna og auka líkur á að ákvarðanir séu teknar á upplýstum og faglegum grunni.

Ágreiningur um hvort áhersla eigi að vera á tekjuöflun eða útgjaldastjórnun ætti þó almennt ekki að koma í veg fyrir samstöðu á öðrum sviðum. Til að mynda ættu flestir að geta sammælst um mikilvægar úrbætur á ferli og framkvæmd fjárlaga, sem talsverðir annmarkar hafa verið á undanfarin ár. Slíkar úrbætur snúa að farsælli úrlausn stjórnvalda á stefnu sinni í ríkisfjármálum til lengri og skemmri tíma – þar fara hagsmunir allra saman.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
2010.06.14 Skodun fjarlog nyrri_1283760831.pdf 272.1Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta