#

Fátækt

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Guðrún Lárusdóttir 1880-1938 is
dc.date.accessioned 2025-03-20T02:50:30Z
dc.date.issued 2023
dc.identifier.isbn 9788728569221
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/34169
dc.description.abstract Fátækt kom fyrst út árið 1949 í ritsafni Guðrúnar Lárusdóttur. Hér er fylgst er með hvernig slæm efnahagsstaða verkar á líf einstaklinga og hvert eðli hennar er. Henni er fylgt allt frá ákvörðunum fátæktarnefndar til einstaka heimili sem við hana glíma. Fátækt fylgir barnæsku Ellu. Ella er dóttir einstæðrar móður og þegar sagan hefst eru þær heimilislausar. Þær kynnast Jóni Árnasyni fátæktarfulltrúa Reykjavíkur og með aðstoð hans byrja smám saman að koma undir sig fótunum og finna sér betra líf. Höfundur sögunnar, Guðrún Lárusdóttir, þekkti sérstaklega vel til fátæktar síns samtíma þar sem hún gegndi hlutverki fátæktarfulltrúa í Reykjavík og barðist þar fyrir betri kjörum bágstaddra. Hér veitir hún innsýn inn í lífshlaup fátækra barna í upphafi 20. aldar á Íslandi.Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin. Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi. is
dc.format.extent 57 bls.
dc.language.iso is
dc.publisher SAGA Egmont is
dc.relation.ispartofseries Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur ; 2 is
dc.subject Íslenskar bókmenntir is
dc.subject Skáldsögur is
dc.subject Rafbækur is
dc.title Fátækt is
dc.type Bók is
dc.description.embargo ævinlega ALL is
dc.date.embargo ævinlega
dc.identifier.gegnir 991016664779306886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
9788728569221.epub 274.3Kb EPUB Aðgangur lokaður epub
9788728569221.jpg 2.802Mb JPEG image Aðgangur lokaður jpg

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta