#

Bræðurnir : saga fyrir unglinga

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Guðrún Lárusdóttir 1880-1938 is
dc.date.accessioned 2025-03-20T02:41:39Z
dc.date.issued 2023
dc.identifier.isbn 9788728569276
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/34113
dc.description.abstract Guðrún Lárusdóttir (1880-1938) er þekkt fyrir sögur með sterkan boðskap handa börnum, unglingum og fullorðnum. Bræðurnir er ein af lengri sögum hennar, hún er ætluð unglingum og var gefin út árið 1930. Sagan fjallar um lífsraunir tveggja stráka sem heita Axel og Jói. Jói er alltaf í grænni lopapeysu. Hann býr hjá Möllu prjónakonu við óvenjulegar fjölskylduaðstæður og er strítt mikið af bekkjarbróður sínum, honum Axel. Jói er hræddur við stríðnina og vill gera allt sem hann getur til að forðast Axel. Hann reynir að verða sér úti um öðruvísi peysu en Malla segir honum að Axel sé afbrýðisamur út í peysuna og neitar að gera aðra til að bægja burt stríðni. Strákarnir halda að þeir eigi ekkert sameiginlegt og eru nokkurs konar óvinir í bekknum. En þegar líður á söguna uppgötva þeir að líf þeirra eru samofnari en þeir gerðu sér grein fyrir áður. Þeir eiga eitthvað stórt sameiginlegt sem ristir djúpt í sál þeirra. Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin. Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi. is
dc.format.extent 219 bls.
dc.language.iso is
dc.publisher SAGA Egmont is
dc.relation.ispartofseries Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur ; 9 is
dc.subject Íslenskar bókmenntir is
dc.subject Skáldsögur is
dc.subject Ungmennabókmenntir (skáldverk) is
dc.subject Rafbækur is
dc.title Bræðurnir : saga fyrir unglinga is
dc.type Bók is
dc.description.embargo ævinlega ALL is
dc.date.embargo ævinlega
dc.identifier.gegnir 991016664782206886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
9788728569276.jpg 4.691Mb JPEG image Aðgangur lokaður jpg
9788728569276.epub 446.3Kb EPUB Aðgangur lokaður epub

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta