dc.description |
Grein þessi byggir á erindi sem höfundur flutti á aðalfundi félagsins Bændasynir hf á Eyrarbakka 29. september 1990. Í þessari grein verða gerðar að umræðuefni nokkrar upplýsingar um ástand og þróun í þeim héruðum landsins þar sem landbúnaðurinn er mikilvægastur. Þar næst verður fjallað nokkrum orðum um stöðu sauðfjárræktarinnar og þá horft sérstaklega til þess að þar er framundan verulegur samdráttur. Að síðustu verður rætt um þá framtíðarmynd sem sjá má af byggðaþróun í sveitum landsins. |
is |