Útdráttur:
|
Frá hruni bankanna hefur framleiðsla vaxið meira á þrem landsvæðum en annars staðar: Á Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi eystra. Hagvöxtur var 15-18% í þessum hlutum landsins á árunum 2008 til 2016, langt yfir landsmeðaltali, sem var 10%.1 Þá vekur athygli 11% vöxtur á Norðurlandi vestra, en þar óx framleiðsla lengi einna hægast á landinu. Framleiðsla virðist vera á uppleið á Vestfjörðum síðustu árin, þótt hún sé ekki miklu meiri 2016 en 2008. Þess ber að gæta að þar hefur laxeldi aukist töluvert eftir 2016. Framleiðsla á Vesturlandi er ekki miklu meiri 2016 en 2008, en hún hefur aðeins tekið við sér seinustu árin. Á Austurlandi virðist framleiðsla fremur fara minnkandi eftir góðan vöxt fyrst eftir að álver tók til starfa í Reyðarfirði. Framleiðsla jókst áfram mikið á Suðurlandi síðasta árið sem hér er skoðað, 2016, eða um 9%. Á Suðurnesjum jókst framleiðsla um 7% 2016 og raunar var þá einnig góður hagvöxtur á Norðurlandi eystra, eða um 5%, þótt hann væri aðeins undirlandsmeðaltalinu, sem var 7%. |