Titill: | Atvinnumál í Ísafjarðarbæ og HríseyAtvinnumál í Ísafjarðarbæ og Hrísey |
Höfundur: | Haraldur L. Haraldsson 1952 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/3179 |
Útgefandi: | Byggðastofnun |
Útgáfa: | 12.1999 |
Efnisorð: | Atvinnumál; Vestfirðir; Ísafjarðarbær; Hrísey; Sjávarútvegur |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Athugasemdir: | Í framhaldi af því að skýrsluhöfundur hefur unnið að atvinnumálum í Ísafjarðarbæ og
Hrísey hefur þessi skýrsla verið tekin saman að beiðni stjórnarformanns Byggðastofnunar. Það er sammerkt með báðum þessum sveitarfélögum að alvarlegt ástand er komið upp í atvinnumálum þeirra. Veiðiheimildir hafa dregist verulega saman og stór atvinnurekandi á hvorum stað hefur tekið ákvörðun um að hætta rekstri. Því er ljóst að verði ekki brugðist skjótt við munu margir íbúar þessara sveitarfélaga missa atvinnu sína. Í framhaldi af vinnu skýrsluhöfundar að atvinnumálum á Þingeyri bað sveitarstjórn Hríseyjarhrepps skýrsluhöfund aðstoðar við uppbyggingu atvinnumála í eynni eftir að Snæfell hf. tók ákvörðun um að hætta öllum rekstri fyrirtækisins í Hrísey. Stjórn Byggðastofnunar hefur tekið ákvörðun um að greiða kostnaðinn við þá vinnu. Eftir að fyrir lá að staða Básafells hf. í Ísafjarðarbæ var mun alvarlegri en menn höfðu gert sér almennt grein fyrir bað bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ skýrsluhöfund að meta eign bæjarfélagsins í fyrirtækinu. Um líkt leyti var ársreikningur félagsins fyrir síðast liðið reikningsár birtur. Af hálfu félagsins var því þá lýst yfir að vegna mikilla skulda þyrfti að selja stóran hlut af eignum þess. Í framhaldi af því hafa farið fram viðræður á milli heimamanna og forsvarsmanna fyrirtækisins um möguleg kaup heimamanna á aflaheimildum og hefur skýrsluhöfundur tekið þátt í þeim viðræðum af hálfu Ísafjarðarbæjar. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
atvinnumal_i_hrisey.pdf | 146.5Kb |
Skoða/ |