Titill: | Skýrsla um félagsþjónustu sveitarfélaga 2011Skýrsla um félagsþjónustu sveitarfélaga 2011 |
Höfundur: | Valgerður Freyja Ágústsdóttir 1973 ; Magnús Karel Hannesson 1952 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/3148 |
Útgefandi: | Samband íslenskra sveitarfélaga |
Útgáfa: | 2011 |
Efnisorð: | Sveitarfélög; Sveitarstjórnir; Félagsleg þjónusta |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Sveitarfélögin bera ábyrgð á fjölbreyttri félagsþjónustu við íbúa sína skv. lögum um félagsþjónustu
sveitarfélaga nr. 40/1991. Markmið félagsþjónustu sveitarfélaga samkvæmt lögunum er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf í tengslum við félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, félagslega heimaþjónustu, málefni barna og unglinga, þar með talin barnavernd, þjónustu við aldraða, þjónustu við fatlað fólk, húsnæðismál, aðstoð við áfengissjúka og vímuefnavarnir. Markmiðið með útgáfu þessarar skýrslu er að birta tölulegar upplýsingar um félagsþjónustu sveitarfélaga og gera þær aðgengilegar fyrir sveitarstjórnarmenn, starfsmenn félagsþjónustu sveitarfélaga og aðra þá sem vilja fylgjast með þróun í málefnum félagsþjónustunnar. Í skýrslunni er fjallað um þá þætti félagsþjónustunnar sem miðlæg gagnaöflun nær yfir, svo sem félagslega heimaþjónustu, fjárhagsaðstoð, barnavernd og húsnæðismál. Tölulegar upplýsingar ná til málaflokksins á landsvísu en einnig er þeim skipt niður eftir landshlutum. Að auki eru upplýsingarnar að nokkru leyti flokkaðar eftir íbúafjölda sveitarfélaga. Upplýsingar í skýrslunni eru fengnar frá ýmsum opinberum aðilum; Hagstofu Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Barnaverndarstofu, Innheimtustofnun sveitarfélaga og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Skýrslan gefur möguleika á árlegum samanburði á ýmsum lykiltölum vegna félagsþjónustu sveitarfélaga. Birtar eru ýmsar magntölur yfir viðtakendur þjónustunnar og kostnað. Athygli er vakin á því að litlar upplýsingar eru til miðlægar um starfsmannahald vegna félagsþjónustu sveitarfélaga. Ljóst má vera að mikið vantar upp á heildarmyndina ef ekki er hægt að nálgast samanburðarhæf gögn um þá er veita þjónustuna og hlýtur slíkt að kalla á breytingar í upplýsingaöflun. Að auki er að finna í skýrslunni fróðleik frá lögfræði- og velferðarsviði sambandsins. Þar má nefna umfjöllun um nýtt starf félagsþjónustufulltrúa, kynningu á nýrri félagsþjónustunefnd sambandsins og umfjöllun um yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga. Í fylgiskjölum eru birt ný lög um málefni fatlaðs fólks, lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Skýrslan er tekin saman af Valgerði Ágústsdóttur, sérfræðingi á hag- og upplýsingasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
felagsthjonusta__2011.pdf | 865.9Kb |
Skoða/ |