#

Skólaskýrsla 2009

Skoða venjulega færslu

dc.date.accessioned 2013-07-22T14:51:34Z
dc.date.available 2013-07-22T14:51:34Z
dc.date.issued 2009
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/3128
dc.description Markmiðið með útgáfu þessarar skýrslu er að birta tölulegar upplýsingar um skólamál og gera þær
aðgengilegar fyrir sveitarstjórnarmenn, stjórnendur grunnskólans og aðra þá sem fylgjast vilja með
þróun í skólamálum. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og að auki er umfjöllun
um tónlistarskóla.
Tölulegar upplýsingar ná til málaflokkanna á landsvísu en einnig er þeim skipt niður eftir
landshlutum. Að auki eru upplýsingarnar að nokkru leyti flokkaðar eftir íbúafjölda sveitarfélaga.
Upplýsingar í skýrslunni eru fengnar frá opinberum aðilum, þ.e Hagstofu Íslands og Sambandi
íslenskra sveitarfélaga. Í höfuðdráttum er gerð grein fyrir starfsemi hvors skólastigs um sig árið 2008 og
að auki eru birtar sambærilegar upplýsingar aftur í tímann eins og kostur er.
Skýrslan gefur möguleika á árlegum samanburði á ýmsum lykiltölum í skólahaldi.
Birtar eru ýmsar magntölur yfir nemendur, skóla, kennara og annað starfsfólk og kostnað vegna
málaflokkana. Að auki er að finna fróðleik frá öðrum sviðum sambandsins. Fjallað er um helstu þætti í
skólamálastarfi sambandsins, svo sem um nýtt starf verkefnisstjóra í skólamálum. Í fyrsta sinn er
umfjöllun um tónlistarskóla í skólaskýrslunni, og byggir hún á niðurstöðum könnunar sem Félag
tónlistarkennara lét gera vorið 2009. Þá er stutt yfirlit yfir innleiðingu nýrra laga og vinnu við setningu
reglugerða. Í fylgiskjölum er birt skjal um skólamál sem sambandið lagði fyrir menntamálanefnd
Alþingis sumarið 2009. Í síðustu skólaskýrslu var sá háttur hafður á að birta ný lög um leik- og
grunnskóla ásamt lögum um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla,
grunnskóla og framhaldsskóla. Ákveðið hefur verið að birta þessi skólalög í skýrslunni um það bil
annað hvert ár, og verða þau birt næst í Skólaskýrslu 2010.
Skýrslan er tekin saman af Valgerði Ágústsdóttur, sérfræðingi á hag- og upplýsingasviði Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
is
dc.language.iso is
dc.publisher Samband íslenskra sveitarfélaga is
dc.subject Menntamál is
dc.subject Sveitarfélög is
dc.subject Grunnskólar is
dc.title Skólaskýrsla 2009 is
dc.type Skýrsla is


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Skolaskyrsla 2009 _2_.pdf 934.6Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta