Útdráttur:
|
Þórbergur Þórðarson er einn fremsti höfundur íslenskra bókmennta en fór furðuseint „í gang“. Hann var 36 ára þegar Bréf til Láru kom út og stóð á fimmtugu þegar hans fyrsta eiginlega skáldverk, Íslenskur aðall, leit dagsins ljós. Hvað hafðist hann að fram að því? Hann háði löngum tvísýna glímu við sárustu fátækt, gaf sig allan á vald háleitustu hugsjónum og átti í litríkum ástarævintýrum. Hér leitast Pétur Gunnarsson við að endurskapa þroskasögu Þórbergs og leitar víða fanga, ekki aðeins í útkomnum verkum heldur ríkulegu óbirtu efni: sendibréfum, dagbókum og óútgefnu ævisöguhandriti. Dregin er upp mynd sem á eftir að koma nýjum sem gömlum aðdáendum Þórbergs á óvart. (Heimild: Bókatíðindi) |