Titill: | Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010 |
Höfundur: | Kjartan Guðnason 1964 ; Sigurður Emil Pálsson 1955 ; Óskar H. Halldórsson ; Elísabet Dólinda Ólafsdóttir 1965 ; Sigurdís Gunnarsdóttir |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/2917 |
Útgefandi: | Geislavarnir ríkisins |
Útgáfa: | 12.2011 |
Ritröð: | GR ; 11:04 |
Efnisorð: | Geislavarnir; Geislavirkni; Geislavirk mengun; Loftmengun; Sjávarmengun; Matvælaeftirlit; Mengunarmælingar |
ISBN: | 978-9979-9977-2-6 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Í þessari skýrslu eru teknar saman vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins á geislavirku
sesíni (Cs-137) í umhverfi og í matvælum árið 2010. Sesín var mælt í eftirfarandi sýnaflokkum: • Andrúmslofti (svifryki) • Úrkomu • Kúamjólk (nýmjólk og mjólkurdufti) • Lambakjöti • Sjó • Þangi • Fiski Niðurstöður mælinga benda til að litlar breytingar hafi orðið á styrk sesíns síðustu árin, hann sé a.m.k. ekki að aukast og sé almennt lágur. Í andrúmslofti er styrkur sesíns < 3 μBq/m3 og í úrkomu < 1 mBq/l. Í sjó mælist styrkur sesíns 1,3-2,1 Bq/m-3. Hæstur styrkur mælist jafnan í pólsjó fyrir norðan og vestan land. Sýnataka á sjó er jafnan í höndum Hafrannsóknastofnunarinnar. Í þangi er styrkur sesíns frá því að vera neðan greiningarmarka og allt að 0,21 Bq/kg þurrvigt og í fiski allt að 0,13 Bq/kg ferskvigt. Í mjólk mælist styrkur sesíns 0,4 – 1,3 Bq/kg ferskvigt og í mjólkurdufti 8,6 - 10 Bq/kg þurrvigt. Styrkur sesíns í lambakjöti er jafnan breytilegur, í sýnum frá árinu 2010 mældist hann 2 – 31 Bq/kg. Styrkur sesíns í íslenskum matvælum er í öllum tilvikum langt innan alþjóðlegra viðmiðunarmarka í milliríkjaverslun, sem eru 1000 Bq/kg. Geislamælar til rauntímavöktunar á gammageislun eru við fjórar sjálfvirkar veðurstöðvar Veðurstofu Íslands, þ.e. á Bolungarvík, Raufarhöfn, í Hornafirði og í Reykjavík auk mælis sem staðsettur er í miðborg Reykjavíkur. Styrkur geislunar er almennt lágur, eða 40- 80 nSv/klst. sem er mun lægra en algengt er í nágrannalöndunum. Niðurstöður vöktunarmælinga frá árunum 1989 - 2009 hafa verið gefnar út. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
voktun_2010.pdf | 500.0Kb |
Skoða/ |