Titill: | Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2005Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2005 |
Höfundur: | Magnús Á. Sigurgeirsson 1963 ; Kjartan Guðnason 1964 ; Elísabet Dólinda Ólafsdóttir 1965 ; Sigurður Emil Pálsson 1955 ; Sigurdís Gunnarsdóttir |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/2914 |
Útgefandi: | Geislavarnir ríkisins |
Útgáfa: | 08.2006 |
Efnisorð: | Geislavarnir; Geislavirkni; Matvælaeftirlit; Loftmengun; Mengunarmælingar; Sjávarmengun |
ISBN: | 978-9979-9756-1-8 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Í skýrslunni eru teknar saman vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins á geislavirku sesíni
(Cs-137) í umhverfinu og í matvælum árið 2005. Sesín-137 var mælt í eftirfarandi sýnaflokkum: · Andrúmslofti (svifryki) · Úrkomu · Kúamjólk (ferskri mjólk og mjólkurdufti) · Lambakjöti · Sjó · Þangi · Fiski · Fugli (veiðibráð) Niðurstöður mælinga benda til að litlar breytingar hafi orðið á styrk sesíns síðustu árin. Í andrúmslofti er styrkur sesíns < 3 μBq/m3 og í úrkomu < 1 mBq/l. Í mjólk mælist styrkur sesíns að jafnaði tæpt 1 Bq/kg og í mjólkurdufti 10 Bq/kg. Styrkur sesíns í lambakjöti er mjög breytilegur yfir landið og spannar vítt bil, 3-33 Bq/kg. Í sjó mælist styrkur sesíns 1,3-3,2 Bq/m3. Hæstur styrkur mælist jafnan í pólsjó fyrir norðan og vestan land. Styrkur Tc-99 (teknetín-99) í sjó mælist 0,07-0,2 Bq/m3. Í þangi mælist styrkur sesíns á bilinu 0,1-0,3 Bq/kg þurrvigt og í fiski á bilinu 0,1-0,4 Bq/kg ferskvigt. Á árinu voru mæld fjögur sýni af gæsakjöti sem fengin voru frá veiðimönnum, styrkur sesíns í þeim mældist á bilinu 1,6-12,2 Bq/kg. Styrkur sesíns í íslenskum matvælum er í öllum tilvikum vel innan alþjóðlegra viðmiðunarmarka í milliríkjaverslun, sem eru 1000 Bq/kg. Geislamælar til rauntímavöktunar á heildar gammageislun eru starfræktir við fjórar sjálfvirkar veðurstöðvar Veðurstofu Íslands, þ.e. á Bolungarvík, Raufarhöfn, Akurnesi og í Reykjavík, auk þess sem um árabil hefur verið starfræktur slíkur mælir á Rjúpnahæð. Styrkur geislunar er almennt lágur, eða 40-80 nSv/klst. Niðurstöður vöktunarmælinga frá árunum 1989-2004 hafa verið gefnar út. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
voktun_2005.pdf | 3.154Mb |
Skoða/ |