#

Geislaálag starfsfólks sem vinnur við jónandi geislun á Íslandi : Yfirlit fyrir árið 2010

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Guðlaugur Einarsson 1953 is
dc.date.accessioned 2013-06-26T14:02:15Z
dc.date.available 2013-06-26T14:02:15Z
dc.date.issued 2011-06
dc.identifier.isbn 978-9979-9977-3-3
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/2888
dc.description.abstract Kynnt er árleg samantekt Geislavarna ríkisins (GR) á niðurstöðum um geislaálag starfsfólks sem vann við jónandi geislun á árinu 2010. Samtals báru 433 einstaklingar geislamælifilmur frá GR á síðasta ári og starfa þeir hjá 83 fyrirtækjum og stofnunum. Um 80% þeirra vinna við störf tengd heilbrigðisþjónustunni og rúmlega 60% starfa við læknisfræðilega myndgreiningu. Af þessum 433 einstaklingum mældist geislun hjá 149 eða 34,4 %. Meðalgeislaálag var 0,15 mSv ef miðað er við alla sem báru geislamælifilmu, en ef eingöngu er miðað við þá starfsmenn sem geislun mældist hjá er meðalgeislaálagið 0,43 mSv. Þá voru 25 einstaklingur var með geislaálag á bilinu 0,5 – 1 mSv og 19 einstaklingar voru á bilinu 1 – 6 mSv. Aðeins einn einstaklingur með hærra geislaálag en 5 mSv og er hann starfsmaður á Ísótópadeild Landspítalans. Þannig voru 95,6% allra starfsmanna ekki með mælanlegt geislaálag eða geislaálag undir 1 mSv, sem er 1/20 af hámarks leyfilegu árlegu geislaálagi samkvæmt reglugerð nr. 627/2003 um hámörk geislunar starfsmanna og almennings vegna
starfsemi þar sem notuð er jónandi geislun. Hópgeislaálag var 0,084 mannSv, sem er örlítið lægra en á síðasta ári (0,118 mannSv) og lægra en meðaltal síðustu 10 ára (0,112 mannSv).
Þá eru einnig birtar niðurstöður á mati á geislaálagi flugáhafna á Íslandi.
Niðurstöðurnar eru sem fyrr eingöngu fyrir einn flugrekanda og eru fyrir árin 2008 og 2010. Fjöldi starfsmanna með mælanlega geislun eru 849 fyrir 2010. Meðalgeislaálag þeirra var 2,31 mSv og hópgeislaálag var 1,9 mannSv. Enginn starfsmaður var með geislaálag yfir 5 mSv. Flugliðar eru lang fjölmennasti hópur geislastarfsmanna, með mun hærra meðalgeislaálag en aðrir hópar geislastarfsmanna.
is
dc.language.iso is
dc.publisher Geislavarnir ríkisins is
dc.relation.ispartofseries GR ; 11:03
dc.subject Vinnuvernd is
dc.subject Geislafræðingar is
dc.subject Geislun is
dc.subject Geislavirkni is
dc.subject Geislavarnir is
dc.title Geislaálag starfsfólks sem vinnur við jónandi geislun á Íslandi : Yfirlit fyrir árið 2010 is
dc.title.alternative Occupational Radiation Exposure in Iceland : Overview for 2010 en
dc.type Skýrsla is


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Rit1102_GeislaalagStarfsfolkLokaskjal.pdf 1.419Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta