Titill: | Geislaálag starfsfólks sem vinnur við jónandi geislun á Íslandi : Yfirlit fyrir árið 2008Geislaálag starfsfólks sem vinnur við jónandi geislun á Íslandi : Yfirlit fyrir árið 2008 |
Höfundur: | Guðlaugur Einarsson 1953 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/2886 |
Útgefandi: | Geislavarnir ríkisins |
Útgáfa: | 04.2009 |
Ritröð: | GR ; 09:01 |
Efnisorð: | Vinnuvernd; Geislavirkni; Geislun; Geislafræðingar; Geislavarnir |
ISBN: | 978-9979-9756-9-4 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Kynnt er árleg samantekt Geislavarna ríkisins á niðurstöðum um geislaálag
starfsfólks sem vann við jónandi geislun á árinu 2008. Samtals báru 534 einstaklingar geislamælifilmur á síðasta ári og starfa þeir hjá 80 fyrirtækjum og stofnunum. Um 90% þeirra vinna við störf tengd heilbrigðisþjónustunni og 60% starfa við læknisfræðilega myndgreiningu. Af þessum 534 einstaklingum mældist geislun hjá 167 eða 31,3 %. Meðalgeislaálag var 0,16 mSv ef miðað er við alla sem báru geislamælifilmu, en ef eingöngu er miðað við þá starfsmenn sem geislun mældist hjá er meðalgeislaálagið 0,51 mSv. Eingöngu 22 einstaklingar voru með geislaálag á bilinu 0,5 – 1 mSv og 23 einstaklingar voru á bilinu 1 – 5 mSv. Þá var einn einstaklingur með hærra en 5 mSv eða 7,1 mSv hjá starfsmanni á rannsóknarstofu í flokki B (kjarnlæknisfræði). Þannig voru 96% allra starfsmanna með geislaálag undir 1 mSv, sem er 1/20 af hámarks leyfilegu árlegu geislaálagi samkvæmt reglugerð nr. 627/2003 um hámörk geislunar starfsmanna og almennings vegna starfsemi þar sem notuð er jónandi geislun. Hópgeislaálag var 0,106 mannSv, sem er örlítið lægra en á síðasta ári (0,112 mannSv) og svipað og meðaltal síðustu 10 ára (0,116 mannSv). |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Rit0901_GeislaalagStarfsfolks2008.pdf | 402.2Kb |
Skoða/ |