Útdráttur:
|
Ég Náttfriður er saga konu sem hefur lifað tvær kreppur, frásögn um fólk sem lifði við kröpp kjör á fyrr hluta 20. aldar. Bókin er dramatísk en skemmtileg frásögn um ævi konu allt frá bernsku til 85 ára. Sagan gerist í Vestur- Húnavatnssýslu og er sönn saga, mannanöfnum ekki breytt. Bókin er myndskreytt. Frá ritara æviminninganna: Ég hef verið að skrifa niður frásagnir Náttfríðar Jósafatsdóttur, móður minnar, eftir að hún fór á sjúkrahúsið, sumt þekkti ég og hef heyrt áður, en ekki eins ítarlega hennar upplifun fyrr en núna. Hún segir skemmtilega frá og segir mér á hispurslausan hátt frá lífi sínu áhyggjulaus og gleðin tekin við. Ég hef grætt frásagnir í hvert sinn sem ég hitti hana. Margir hefðu viljað skrifa niður það sem eldra fólk hefur að segja en orðið of seinir. Það er ekki vafi á að það sem hún segir er satt. Ártöl hef ég sannreynt. Mannanöfn sem hér koma við sögu eru ýmist skírnarnöfn eða gælunöfn. Hér er smá innsýn í líf hennar- og fólks sem lifði við kröpp kjör fyrri hluta 19. aldar. Þegar ég var krakki og mamma var að bera heim úr búðinni þá sagðist hún vera búin að labba fyrir lífstíð. Ég er að skilja núna fyrst af hverju hún sagði það. Flestar myndir eru úr hennar myndasafni. |