dc.contributor.author | Guðrún Á. Jónsdóttir 1954 | is |
dc.date.accessioned | 2013-06-11T10:46:10Z | |
dc.date.available | 2013-06-11T10:46:10Z | |
dc.date.issued | 2001-04 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/2806 | |
dc.description | Að beiðni Vegagerðarinnar tók Náttúrustofa Austurlands að sér að meta verndargildi
landslagsheilda vegna mats á umhverfisáhrifum jarðganga milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, en ábending um að þetta skyldi meta kom frá Skipulagsstofnun. Ekki virðist með öllu ljóst hvernig túlka á landslagsheild t.d. hvort átt er við þau svæði sem mynda heild, landslagsgerðir innan svæða eða jafnvel vistgerðir, og er það látið liggja hér milli hluta. Aðferðir við mat á verndargildi svæða eða landslags eru fremur ómótaðar hérlendis. Skýrsla sem unnin var af Náttúrufræðistofnun um náttúruverndargildi á virkjunarsvæðum norðan jökla gefur þó mikilvægar forsendur til að styðjast við (Sigmundur Einarsson (ritstj.) 2000). Þær forsendur eru byggðar á þeim grundvallarsjónarmiðum sem fram koma í náttúruverndarlögum (44/1999) og alþjóðlegum samþykktum. Út frá þessu má meta gildi tiltekinna svæða. Hugsanlega mætti þó bæta við þetta einhvers konar mati á þáttum eins og útsýni, rýmd og heildarsvip. Það getur verið erfitt að mæla þá þætti en þeir geta skipt talsverðu máli varðandi það hvernig fólk skynjar umhverfið og áhrif framkvæmda á það. Í þessari greinargerð er gerð tilraun til að leggja mat á verndargildi svæða sem verða fyrir áhrifum af fyrirhugaðri vega- og jarðgangagerð. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Náttúrustofa Austurlands | is |
dc.relation.ispartofseries | ; NA-34 | |
dc.title | Mat á verndargildi landslagsheilda í Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði vegna mats áumhverfisáhrifum jarðganga | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
NA-34.Verndargi ... ðarf og Fáskrúðsf..pdf | 203.4Kb |
Skoða/ |