Útdráttur:
|
Í samræðum við ókunnugan mann kemur í ljós að undir sléttu og felldu yfirborði Sólu, leynist fjársjóður sem geymir misfagrar minningar úr fortíð hennar. Heiða hefur skapað sér sinn eigin ritstíl sem er í senn ögrandi, hispurslaus, hugljúfur og litaður af húmor. Hún fléttar persónulega reynslu saman við eigin lífssýn á skemmtilegan hátt. Sagan er að einhverju leyti byggð á atvikum úr lífi höfundar. Aldrei hafa eins viðkvæm málefni eins og ofbeldi í sinni dekkstu mynd og geðveiki verið sett fram á sambærilegan hátt. Einlæg saga og hispurslaus, allt að því erótísk á stundum... Þetta er frumraun Heiðu Þórðar á ritvellinum og má með sanni segja að vel hafi tekist til. Sumt er satt en engu logið... |