Útdráttur:
|
Í átján ár voru þau hjón – hún og hann. Svo skildu leiðir og tilfinningabyltingin tók öll völd. En hvenær hófst sú atburðarás? Hér beitir Auður Jónsdóttir aðferðum skáldskaparins til að segja sögu sem er í senn einstök og algild. Frásögnin spannar fyrsta árið eftir að söguhetjan gengur út úr hjónabandi sínu á nýjum, rauðum strigaskóm – en fjallar ekki síður um árin þar á undan, jafnvel alla ævi parsins og fólksins sem að því stendur. Um leið er þetta saga af einhleypum manneskjum á miðjum aldri að fikra sig áfram í upplausn, eins smeykar við nánd og þær þrá hana. Bækur Auðar Jónsdóttur hafa vakið athygli heima og erlendis fyrir fágæta blöndu af nístandi einlægni og húmor. Stóri skjálfti var valin skáldsaga ársins af bóksölum og tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þau hlaut hún fyrir Fólkið í kjallaranum sem einnig var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, eins og skáldsagan Ósjálfrátt. Þar, eins og hér, sótti Auður efniviðinn í eigin reynslu sem hún miðlar af skáldlegum frumleika og dirfsku. |