#

Áhrif fiskpróteinmeltu á þroska þorsklirfa

Skoða fulla færslu

Titill: Áhrif fiskpróteinmeltu á þroska þorsklirfaÁhrif fiskpróteinmeltu á þroska þorsklirfa
Höfundur: Hólmfríður Sveinsdóttir 1972 ; Jónína Jóhannsdóttir 1954 ; Rannveig Björnsdóttir 1959 ; Oddur Vilhelmsson 1968 ; Hugrún Lísa Heimisdóttir 1982 ; Hamaguchi, Patricia Yuca 1975- ; Vrac, Annabelle 1979 ; Gunnlaugur Sighvatsson 1967 ; Steinar Svavarsson 1965 ; Arnljótur Bjarki Bergsson 1977 ; Agnar Steinarsson 1964
URI: http://hdl.handle.net/10802/2590
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 05.2012
Ritröð: Líftækni og lífefni ;Skýrsla Matís ; 18-12
Efnisorð: Ónæmisvefjafræði; Ufsapróteinmelta; Þorskeldi; Ufsi
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Íslenska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Eitt helsta vandamálið við eldi á þorski eru mikil afföll á fyrstu stigum þroskunar og gæði seiða. Markmið þessa verkefnis var að fá heilsteyptari mynd af áhrifum auðgunar fæðudýra með ufsapróteinmeltu á lífefnaferla í snemmþroska þorsk með því að beita myndgreiningaraðferðum og próteinmengjagreiningu.

Niðurstöður benda til töluverðrar andoxunarvirkni ufsapróteinmeltu auk nokkurrar áhrifa á bólguvirkni. Afkoma lirfa í eldistilraun var frekar lág þó svo að vaxtarhraði væri alveg viðunandi og lítið væri um alvarlega útlitsgalla.

Meðhöndlun með ufsapróteinmeltu reyndist ekki hafa áhrif á afkomu eða galla lirfa en vísbendingar voru um örvun á framleiðslu IgM og lysozyme í meltingarvegi og á yfirborði lirfa. Próteinmengjagreiningar sýndu að meðhöndlun hafði áhrif á tjáningu frumugrindapróteina, próteina sem taka þátt í streitu auk efnaskiptaensímsins ATP‐synthasa. Niðurstöður benda til að notkun ufsapróteinmeltu geti bætt og jafnað gæði seiða ef gæði eggja er ábótavant en
þegar notuð eru egg af góðum þá hafi meðhöndlun ekki áhrif.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Matís 18-12 Áh ... tu á þroska þorsklifra.pdf 1.393Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta