Titill: | Monitoring of the marine biosphere around Iceland 2010 and 2011Monitoring of the marine biosphere around Iceland 2010 and 2011 |
Höfundur: | Hrönn Ólína Jörundsdóttir 1978 ; Natasa Desnica 1973 ; Þuríður Ragnarsdóttir 1949 ; Helga Gunnlaugsdóttir 1963 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/2586 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 07.2012 |
Ritröð: | Öryggi, umhverfi og erfðir ;Skýrsla Matís ; 28-12 |
Efnisorð: | Snefilefni; Þorskur; Kræklingur |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Í þessari skýrslu eru birtar niðurstöður árlegs vöktunarverkefnis sem
styrkt var af umhverfisráðuneytinu og sjávarútvegs‐ og landbúnaðarráðuneytinu. Markmið með þessari vöktun er að uppfylla skuldbindingar Íslands varðandi Oslóar‐ og Parísarsamninginn (OSPAR), auk AMAP (Arctic Monitoring Assessment Program). Gögnin eru hluti af framlagi Íslands í gagnabanka Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES). Hafrannsóknastofnunin sér um að afla sýna og Matís hefur umsjón með undirbúningi sýna og mælingum á snefilefnum í lífríki hafsins. Sýnin eru mæld á Matís og á Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja‐ og eiturefnafræði. Mæld voru ýmis ólífræn snefilefni og klórlífræn efni í þorski veiddum í árlegu vorralli Hafró í mars 2011 og í kræklingi sem safnað var á 11 stöðum í kringum landið í ágúst/sept 2010. Vöktun í lífríki sjávar við Ísland hófst 1989 og er sýnasöfnun eins frá ári til árs og unnið eftir alþjóðlegum sýnatökuleiðbeiningum. Gögnunum er safnað saman í gagnagrunn, í skýrslunni eru birtar yfirlitsmyndir fyrir sum efnanna sem fylgst er með. Kadmín er svæðisbundið hærra í íslenskum kræklingi samanborið við krækling frá öðrum löndum. Niðurstöður sýna breytingar í mynstri styrks klórlífrænna efna í kræklingi sem safnað var nálægt Hvalstöðinni í Hvalfirði í september 2010 sem eru sambærilegar við niðurstöður frá sama stað frá árinu 2009. Ekki voru sýnilegar breytingar í styrk þessara efna á söfnunarstað kræklings við Hvammsvík í Hvalfirði né á neinum öðrum söfnunarstað í kringum landið sem rannsakaður var 2010. Mikilvægt er að fylgjast með þessum breytingum í mynstri styrks klórlífrænna efna í kræklingi í vöktunarverkefninu á næstu árum til að sjá hvort þær eru enn til staðar. Ítarleg tölfræðigreiningu á gögnunum er í gangi þ.a. hægt sé að meta með vísindalegum aðferðum aukningu eða minnkun mengandi efna í lífríki sjávar hér við land. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Matís 28-12 Mon ... sphere AMSUM 2010-2011.pdf | 1.898Mb |
Skoða/ |