Titill: | Vinnslueiginleikar mismunandi kartöfluafbrigðaVinnslueiginleikar mismunandi kartöfluafbrigða |
Höfundur: | Valur Norðri Gunnlaugsson 1973 ; Jónatan Hermannsson 1946 ; Þórdís Anna Kristjánsdóttir 1953 ; Aðalheiður Ólafsdóttir ; Irek Adam Klonowski 1945 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/2580 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 03.2012 |
Ritröð: | Vinnsla, virðisaukning og eldi ;Skýrsla Matís ; 09-12 |
Efnisorð: | Kartöflur; Kartöflurækt |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Ræktuð voru 4 yrki, Annabelle, Milva, Salome og Gullauga. Ræktunin fór fram á Korpu í dæmigerðu mólendi og voru Annabelle og Gullauga með betri uppskeru en hin yrkin, auk þess sem Gullauga var með hæsta þurrefnisinnihaldið.
Yrkin komu mjög mismunandi út úr vinnsluþættinum sem framkvæmdur var hjá Sölufélaginu. Nýting Salóme var langtum best, Gullauga hafði djúp augu sem dró nýtinguna niður, hluti Milvu var skemmdur og var flokkaður frá og lögun Önnubelle kom í veg fyrir góða nýtingu. Í neytendakönnun greindu þátttakendur minni mun á milli kartöfluafbrigða en þeir gerðu í síðustu könnun og var smekkur þátttakenda misjafn. Almennt komu Gullauga kartöflurnar best út úr neytendakönnuninni, munur milli afbrigða var þó einungis marktækur fyrir útlit. Afbrigðin virðast öll enn vera vinnsluhæf eftir geymslu við 5,7°C í hátt í 200 daga frá upptöku, þrátt fyrir að sum afbrigði hafi verið farin að spíra, þó mismikið. Vinnslulega komu Milva, Salome og Gullauga öll ágætlega út nýtingarlega séð en dómarahópurinn var hrifnastur af bragðgæðum Gullauga. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Matís 09-12 Vin ... nandi kartöfluafbrigða.pdf | 1.664Mb |
Skoða/ |