dc.contributor.author | Natasa Desnica 1973 | is |
dc.contributor.author | Sophie Jensen 1979 | is |
dc.contributor.author | Guðrún G. Þórarinsdóttir 1952 | is |
dc.contributor.author | Jón Óskar Jónsson | is |
dc.contributor.author | Hörður G. Kristinsson 1972 | is |
dc.contributor.author | Helga Gunnlaugsdóttir 1963 | is |
dc.date.accessioned | 2012-10-15T12:37:18Z | |
dc.date.available | 2012-10-15T12:37:18Z | |
dc.date.issued | 2011-12 | |
dc.identifier.issn | 1670-7192 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/2563 | |
dc.description.abstract | Til þess að íslensk kræklingarækt geti vaxið og dafnað er mikilvægt að framkvæma grunnrannsóknir
varðandi öryggi og gæði á ferskum íslenskum kræklingi sem geta nýst framleiðendum við markaðssetningu og sölu afurðanna. Tilgangurinn með þessu átján mánaða langa rannsóknarverkefni var að safna upplýsingum um öryggi og gæði kræklings (Mytilus edulis) í markaðsstærð (> 45 mm) sem ræktaður er við strendur Íslands. Samtals var þrettán kræklingasýnum í markaðsstærð safnað á fjórum mismunandi ræktunarstöðum við landið (Hvalfirði, Breiðafirði, Álftafirði og Eyjafirði) á mismunandi árstímum. Kræklingur í markaðstærð fékkst ekki á Eskifirði og þessi ræktunarstaður var því útilokaður frá verkefninu. Í staðinn voru tekin sýni oftar á hinum ræktunarstöðunum fjórum en upphaflega var ráðgert. Kræklingi var safnað af ræktunarlínum og tími og staðsetning skráð. Þyngd, lengd og holdfylling var mæld. Kræklingurinn var kyngreindur og kynþroskastig áætlað í hverju sýni. Í þessu verkefni var safnað umtalsverðum upplýsingum um næringarefnainnihald (prótein, vatn, fita, aska) auk lífvirkra efna s.s. selens, sinks, karótíníða og fitusýrusamsetningar í kræklingi frá mismunandi ræktunarstöðum og á mismunandi árstímum. Sömuleiðis voru mæld óæskileg ólífræn snefilefni (blý, kvikasilfur, kadmíum, kopar, nikkel, arsen, króm og silfur) í öllum sýnum. Einnig var unnið að því setja upp og prófa hraðvirkrar mæliaðferðir til að mæla þrjár tegundir þörungaeiturs þ.e.a.s. ASP, PSP og DSP. Mæliaðferðirnar voru bestaðar gagnvart þeim tækjabúnaði sem til staðar er hjá Matís og einnig mæld viðmiðunarsýni (þ.e. kræklingur með þekktu magni þörungaeiturs) til að meta gæði mælinganna. Prófuð voru tvenns konar hraðvirk próf sem til eru á markaði til þess að meta hvernig þau reynast við þörungaeitursmælingar í kræklingi. Annars vegar voru prófuð svokölluð Jellet próf og hins vegar ELISA próf. Niðurstaðan er sú að bæði prófin eru tiltölulega einföld í notkun, hins vegar er nauðsynlegt er að prófa þau á aðeins fleiri sýnum, en gert var hér, til að leggja betra mat á það hvernig best væri að nýta þau í gæðaeftirliti með kræklingarækt. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir takmörkunum þessara hraðvirku prófana þar sem þau munu ekki koma algerlega í staðinn fyrir mælingar með viðurkenndum rannsóknaraðferðum. Þessar prófanir, gætu aftur á móti, fækkað þeim sýnum verulega sem send eru til viðurkenndra mælinga, þar sem ekki væru send sýni þegar forprófanirnar sýna að þörungaeitur er til staðar og ekki fengist leyfi til að uppskera krækling. Niðurstöðurnar benda til þess að íslenskur kræklingur hafi ákjósanlega næringarefnasamsetningu sem þó er háð náttúrlegum árstíðabreytingum. Fjölbreytagreining (PCA) sýnir að kræklingur inniheldur hærra hlutfall af fitu og próteini á vorin (maí og júní) líklega vegna þess að kræklingurinn er að undirbúa hrygningu á þessum árstíma. Snemma að hausti minnkar hlutfall próteins á meðan magn óþekktra efna eykst. Á þessum árstíma er hrygningu að ljúka, ef ekki lokið. Greiningin sýnir einnig veika jákvæða fylgni milli próteins og fitu, en sterka neikvæða fylgni milli próteins og óþekktra efna. Styrkur þungmálma (kvikasilfurs, blý, kadmíums) var almennt lágur, en í nokkrum tilvikum var styrkur kadmíums þó hærri en leyfilegt er samkvæmt íslenskum og Evrópusambands reglugerðum (1 mg/kg). Mikilvægt er því að fylgjast með styrk kadmíums í íslenskum kræklingi áður en hann fer á markað. Niðurstöður fitusýrugreininga sýna að íslenskur kræklingur inniheldur umtalsvert magn af omega‐3 fitusýrunum EPA (C20:5n3) og DHA (C22:6n3) auk Palmitoleate (C16:1n7), sem allar eru þekktar fyrir jákvæð áhrif á heilsu. Niðurstöður verkefnisins sýna að íslenskur kræklingur er samkeppnishæfur varðandi næringarefna samsetningu og inniheldur auk þess jákvæð lífvirk efni. Þessar niðurstöður munu tvímælalaust nýtast kræklingaræktendum við markaðskynningar og skipulagningu varðandi uppskeru og sölu kræklingsafurða |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Matís | is |
dc.relation.ispartofseries | Öryggi, umhverfi og erfðir ; | |
dc.relation.ispartofseries | Skýrsla Matís ; 44-11 | |
dc.subject | Kræklingur | is |
dc.subject | Næringarefnafræði | is |
dc.subject | Þungmálmar | is |
dc.subject | Þörungar | is |
dc.subject | Skýrslur | is |
dc.title | Icelandic blue mussels - A valuable high quality product | is |
dc.title.alternative | Gæðakræklingur er gulls ígildi | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Matís 44-11 Gæðakræklingur.pdf | 810.2Kb |
Skoða/ |