Útdráttur:
|
Skip strandar í foráttuveðri við hrjóstruga austurströnd Skotlands árið 1906. Rökstuddur grunur er uppi um að glæpur hafi verið framinn og skipið leitt með villuljósi af ásetningi í ógæfu. Mörgum áratugum seinna kemur á staðinn afkomandi þess, sem grunaður er um verknaðinn, ungur munaðarlaus drengur að nafni Davíð, sem sest þar að í Óðali óttans. Hefst nú æsispennandi atburðarás sem grípur lesandann heljartaki. Setið er um líf unga drengsins og hangir líf hans á bláþræði hvað eftir annað í þessari magnþrungnu sögu. Þetta er saga um ógnir og ævintýr, skelfingu og hættur en ekki síður um góðvild og vinskap og hvernig hið góða sigrar hið illa að lokum. Höfundur hefur áður skrifað 5 bækur sem allar eru uppseldar. |