Útdráttur:
|
Hvað ef þú segðir já við tilfinningunum og já við hjartanu? Líka já við ringluð? Og af hverju ertu ringluð? Er það vegna þess að þú vissir ekki að til væri svo djúpur brunnur tilfinninga? Vegna þess að þér finnst einhver einhvern tíma hafa sagt þér að forðast það sem ekki er í alfaraleið? Ég tók ákvörðun einn eftirmiðdag er ég kom inn úr rokinu, um að láta á það reyna, að fara burt. Eitthvað gerðist sem færði mig skrefi framar... Sagan um Níní er þroskasaga, ástarsaga, saga um kjarkinn til að láta skeika að sköpuðu. Ung kona flytur frá Íslandi, alla leið til Spánar. Og lendir á gömlum sveitabæ. Hún er í leit að einhverju. Það sem hún finnur, slær hana kalda. Sjóðandi heita en kalda. |