Útdráttur:
|
Ef þú ert efins um faðernið, heillast af átröskuðu kvenfólki, lifir í draumi annarra, ert huglaus, hugsjónalaus og siðlaus, alin(n) upp í sjávarþorpi, talnaglögg(ur), heppin(n) í útliti, óheppin(n) í ástum.., þá gæti bókin verið um þig. Ef þú hefur líka gert það í líkhúsi.., þá er bókin um þig. Höfundurinn Lýður Árnason, er læknir og gjarnan kenndur við Vestfirði enda starfað þar lengstum. Hann sat í stjórnlagaráði og hefur ritað fjöldann allan af pistlum um þjóðmál. Svartir túlípanar er hans fyrsta skáldsaga í fullri lengd, en áður hefur Lýður gefið út smásögur og framleitt nokkrar kvikmyndir. (Heimild: Bókatíðindi) |