dc.description.abstract |
Blekking er sjálfstæð saga en með persónum og ívafi úr bókinni Klækjum eftir Sigurjón, sem út kom 2011 og hlaut BLÓÐDROPANN 2012, sem besta íslenska glæpasagan. Mörður er á ferð um Norðausturland, æskuslóðir móður sinnar og lítur inn hjá Magnúsi, öldnum bróður hennar á Húsavík, sem hann hefur hvorki séð né heyrt frá í áratugi. Merði er vel fagnað af frænda sínum og þegar þeir kveðjast grefur Magnús upp gamalt bréf til hans frá stúlku sem Mörður hafði kynnst síðast er hann var á Húsavík, aldarþriðjungi áður. Í bréfinu, sem skrifað er skömmu eftir kynni þeirra, má finna Biblíutilvitnun sem tengist altaristöflu Húsavíkurkirkju og skilja má sem hróp Rúnu um hjálp, en á töflunni reisir Jesú Lasarus upp frá dauðum. Forvitni Marðar er vakin. Hann fer að kanna afdrif Rúnu og kemst fljótlega að því að skömmu eftir að hún skrifaði bréfið var hún myrt á hrottafenginn hátt. Við nánari eftirgrennslan um afdrif Rúnu rekst hann á hindranir. Atburðarásin teygir sig til Danmerkur þar sem sannleikurinn virðist leynast. (Heimild: Bókatíðindi) |
is |