Útdráttur:
|
Eftirfarandi er skýrsla um notkun á vefjum Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns árið 2011. Skýrslan er unnin upp úr gögnum Modernus fyrir flesta vefina, en Google Analytics fyrir fjóra nýjustu vefina í talningu (Inngang, OpenAccess.is, Bækur.is og Rafhlöðuna). Raunar er nú tvöföld vefmæling á mörgum vefjum safnsins þar sem þeir eru mældir bæði með Modernus og Google Analytics sem bjóða upp á ólíka valkosti. Skýrslan fjallar um notkun á sautján vefjum sem er haldið úti á vegum safnsins. |