Titill: | Monitoring of the marine biosphere around Iceland 2009 and 2010Monitoring of the marine biosphere around Iceland 2009 and 2010 |
Höfundur: | Helga Gunnlaugsdóttir ; Desnica, Natasa ; Þuríður Ragnarsdóttir ; Hrönn Jörundsdóttir ; Ól |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/2050 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 09.2011 |
Ritröð: | Skýrslur Matís ; 24-11 |
Efnisorð: | OSPAR; AMAP; Lífríki sjávar; Ólífræn snefilefni; Klórlífræn efni; Þorskur; Kræklingur |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Enska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Í þessari skýrslu eru birtar niðurstöður árlegs vöktunarverkefnis sem
styrkt var af umhverfisráðuneytinu og sávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Markmið með þessari vöktun er að uppfylla skuldbindingar Íslands varðandi Oslóar- og Parísarsamninginn (OSPAR), auk AMAP (Arctic Monitoring Assessment Program). Gögnin hafa verið send í gagnabanka Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES). Hafrannsóknastofnunin sér um að afla sýna og Matís hefur umsjón með undirbúningi sýna og mælingum á snefilefnum í lífríki hafsins. Sýnin eru mæld á Matís og á Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði. Mæld voru ýmis ólífræn snefilefni og klórlífræn efni í þorski veiddum í árlegu vorralli Hafró í mars 2010 og í kræklingi sem safnað var á 10 stöðum í kringum landið í ágúst/sept 2009. Vöktun í lífríki sjávar við Ísland hófst 1989 og er sýnasöfnun eins frá ári til árs og unnið eftir alþjóðlegum sýnatökuleiðbeiningum. Gögnunum er safnað saman í gagnagrunn, í skýrslunni eru birtar yfirlitsmyndir fyrir sum efnanna sem fylgst er með. Kadmín er svæðisbundið hærra í íslenskum kræklingi samanborið við krækling frá öðrum löndum. Niðurstöður sýna breytingar í mynstri styrks klórlífrænna efna í kræklingi sem safnað var nálægt Hvalstöðinni í Hvalfirði í september 2009, ekki voru sýnilegar breytingar í styrk þessara efna á söfnunarstað kræklings við Hvammsvík í Hvalfirði né á neinum öðrum söfnunarstað í kringum landið sem rannsakaður var 2009. Mikilvægt er að fylgjast með þessum breytingum í mynstri styrks klórlífrænna efna í kræklingi í vöktunarverkefninu á næstu árum til að sjá hvort þær eru enn til staðar. Ítarleg tölfræðigreining á gögnunum er í gangi þ.a. hægt sé að meta með vísindalegum aðferðum aukningu eða minnkun mengandi efna í lífríki sjávar hér við land. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
24-11-AMSUM-2010.pdf | 1.252Mb |
Skoða/ |