Útdráttur:
|
Greint er frá aðlögun HBV-rennslislíkans af vatnshæðarmælum á Vestfjörðum að hlutvatnasviðum á hálendi Glámu. Hlutvatnasviðin eru á vatnasviðum Fjarðarár í Skötufirði, Hundsár, Ísafjarðarár, Vattardalsár og Vatnsdalsár í Vatnsfirði. Rennslisraðir voru bornar saman við rennslismælingar og sem gerðar hafa verið á svæðinu. Reiknaðar rennslisraðir spanna vatnsárin 1961-1999. |