Útdráttur:
|
Gerð er grein fyrir rannsóknum á ummerkjum fornra lóna að Fjallabaki norðvestan Mýrdalsjökuls. Þær eru liður í verkinu Umhverfi og orkuöflun - Jöklalandslag í tengslum við Rammaáætlun um nýtingu vatnsorku og jarðhita. Lónin sem hér um ræðir mynduðust í lægðum milli móbergshryggja þegar ísaldarjökull hörfaði af svæðinu. Lónin fylltust af seti, og þegar þau tæmdust aftur grófu ár og lækir sig niður í lónsetið svo víða má lesa sögu þeirra í bökkunum. Þrjú stærstu lónin eru meginviðfangsefni rannsóknanna, Launfitarlón, Torfalón og Emstrulón. Af þeim hefur Torfalón langmest verið rannsakað og hefur náðst samfellt snið af allri lónfyllunni þar. Fjölmörg gjóskulög hafa fundist í lónsetinu, flest frá Kötlu, og þykkt, súrt gjóskulag, GRA-1, að öllum líkindum frá Hrafntinnuskeri. Af aldursgreiningum plöntuleifa má ráða að lón hafi farið að myndast fyrir um 9 þús. árum. Þau fyllast síðan af seti fyrir um 5-6 þús. árum. Ljóst er að lónset að Fjallabaki og við Kárahnjúka eru ekki fyllilega sambærileg, hvorki að uppruna né gerð. |