Titill:
|
Dygðirnar í Laxdæla sögu : efniviður fyrir mannkostamenntunDygðirnar í Laxdæla sögu : efniviður fyrir mannkostamenntun |
Höfundur:
|
Róbert Jack 1971
|
URI:
|
http://hdl.handle.net/10802/19568
|
Útgáfa:
|
2018 |
Efnisorð:
|
Ritrýndar greinar; Bókmenntakennsla; Íslendingasögur; Siðferði
|
Tungumál:
|
Íslenska
|
Tengd vefsíðuslóð:
|
http://netla.hi.is/serrit/2018/bokmenntir_listir_menntun/10.pdf
|
Tegund:
|
Bók |
Gegnir ID:
|
991011538049706886
|
Birtist í:
|
Bókmenntir, listir og grunnþættir menntunar : 2018
|
Athugasemdir:
|
Rafræn útgáfa eingöngu |
Útdráttur:
|
Bókmenntakennsla í anda mannkostamenntunar byggist mjög á því að fjalla um dygðirnar í textanum. Þegar tilraun var gerð með að kenna Laxdæla sögu með þessu móti þurfti að taka saman dygðirnar í sögunni. Í þessari grein er að finna ítarlega greiningu á dygðum í Laxdælu. Beitt var tveimur aðferðum við að leita að dygðunum. Fyrri aðferðin fólst í að skoða þau dygðaorð sem koma fyrir í sögunni. Þannig má fá nokkuð heilsteypta mynd af þeim dygðum sem höfundur Laxdælu nefnir sjálfur. Til að fá breiðari mynd af dygðunum í sögunni og jafnframt dýpri mynd af þeim aðstæðum þar sem dygðir koma fyrir var beitt annarri aðferð. Þar var notaður listi yfir dygðir frá Jubilee-miðstöðinni á Englandi og skoðað hvað af þeim mætti finna í sögunni. Í báðum tilfellum voru sams konar dæmi tekin saman til að gefa sem besta mynd af notkun orða og tilvist dygða í Laxdælu. Greiningin er rökstuðningur fyrir tilvist dygða í sögunni, getur nýst þeim sem vilja kenna Laxdælu út frá dygðum og loks varpar hún fræðilegu ljósi á þær dygðir sem finna má í sögunni. |