#

Orðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs : langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleika

Skoða fulla færslu

Titill: Orðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs : langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleikaOrðaforði íslenskra barna frá 4 til 8 ára aldurs : langtímarannsókn á vaxtarhraða og stöðugleika
Höfundur: Hrafnhildur Ragnarsdóttir 1948
URI: http://hdl.handle.net/10802/18508
Útgáfa: 2018
Efnisorð: Ritrýndar greinar; Málþroski; Leikskólabörn; Grunnskólanemar; Orðaforði; Langtímarannsóknir
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: https://doi.org/10.24270/netla.2018.15
Tegund: Tímaritsgrein
Gegnir ID: 991011339749706886
Birtist í: Netla 2018
Athugasemdir: Rafræn útgáfa eingöngu
Útdráttur: Greinin fjallar um orðaforðahluta rannsóknar á þróun máls og læsis meðal íslenskra barna á aldrinum 4 til 8 ára. Um er að ræða viðamikla langtímarannsókn á flestum þáttum málþroska og tengslum hans við þróun læsis og félagsþroska. Til að bæta úr skorti á íslenskum mælitækjum fyrir orðaforða var útbúið orðaforðapróf fyrir börn á aldrinum 4 til 8 ára, kallað Ísl-PPVT. Markmið þess hluta rannsóknarinnar sem greinin fjallar um var að afla vísbendinga um vaxtarhraða orðaforða íslenskra barna á mörkum leik- og grunnskóla, kanna stöðugleika mælinga með nýja orðaforðaprófinu milli ára og meta réttmæti þess. Þátttakendur voru 222 börn í tveimur aldurshópum sem sköruðust í 1. bekk. Í yngri hópnum voru 111 börn, 55 stúlkur og 56 drengir, sem fylgt var eftir við 4, 5, 6 og 8 ára aldur. Í þeim eldri voru 46 stúlkur og 65 drengir prófuð með orðaforðaprófinu við 6 og 7 ára aldur. Munur á meðalorðaforða hópanna tveggja í fyrsta bekk var ekki marktækur og því hægt að sameina þá í einn. Niðurstöður sýndu að orðaforði barna vex hratt á þessu aldursbili en jafnframt birtust vísbendingar um mikinn einstaklingsmun strax við 4 ára aldur. Áreiðanleiki og réttmæti Ísl-PPVT reyndist vera fullnægjandi; prófið sýndi marktæka fylgni við aðra orðaforðamælingu (Orðalykil), mælingar á málfræðiþekkingu öll árin, við hlustunarskilning í leikskóla og við lesskilning í 4. bekk. Eins og fjölmargar erlendar rannsóknir sýnir rannsóknin því fram á tengsl orðaforða frá 4 ára við lesskilning og aðra þætti læsis allt upp á miðstig grunnskóla. Í ljósi þess hve mikilvæg undirstaða er lögð á þessum árum fyrir síðari lesskilning og námsárangur hlýtur að vera forgangsatriði að finna þau börn sem standa höllum fæti ekki síðar en við 3 til 4 ára aldur, fylgjast grannt með þeim og tryggja viðeigandi stuðning.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
2928-4424-1-PB.pdf 564.4Kb PDF Skoða/Opna Heildartexti

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta