Útdráttur:
|
Á köldum janúardegi er lögreglan kölluð að blokk í Reykjavík þar sem lík hefur fundist í garðinum. Þetta reynist vera stálpaður drengur, dökkur á hörund, sem liggur á grúfu í blóði sínu, frosinn fastur við svellið. Illur grunur kviknar um skelfilegan glæp. Erlendur, Elínborg og Sigurður Óli hefja rannsókn málsins og utan úr myrkri og hríðarkófi birtast um síðir staðreyndir sem eru jafnvel nöturlegri en vetrarnótt við heimskautsbaug. Arnaldur Indriðason nýtur hylli víða um lönd fyrir magnaðar og spennandi sögur sínar sem hafa fengið frábæra dóma og raðað sér á metsölulista stórþjóða. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir bækur sínar, meðal annars Glerlykilinn, norrænu glæpasagnaverðlaunin, í tvígang og virtustu glæpasagnaverðlaun heims, Gullrýtinginn, árið 2005. Hér heima eru vinsældir hans gríðarlegar og fara vaxandi ár frá ári. Vetrarborgin er níunda skáldsaga hans. |