#

„Þetta gefur okkur vettvang utan skólans“ : Facebook sem verkfæri í háskólanámi

Skoða fulla færslu

Titill: „Þetta gefur okkur vettvang utan skólans“ : Facebook sem verkfæri í háskólanámi„Þetta gefur okkur vettvang utan skólans“ : Facebook sem verkfæri í háskólanámi
Höfundur: Silja Bára Ómarsdóttir 1971
URI: http://hdl.handle.net/10802/18093
Útgáfa: 2016
Efnisorð: Ritrýndar greinar; Samfélagsmiðlar; Tölvur í skólastarfi
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://netla.hi.is/greinar/2016/ryn/12_ryn_arsrit_2016.pdf
Tegund: Tímaritsgrein
Gegnir ID: 991008036049706886
Birtist í: Netla 2016
Athugasemdir: Rafræn útgáfa eingöngu
Útdráttur: Facebook hefur notið mikilla vinsælda hjá almenningi og hefur töluvert verið notað í kennslu. Lítið hefur þó verið skrifað um það og rannsóknir á nytsemi miðilsins eru takmarkaðar. Þessi grein lýsir tilraunaverkefni í stjórnmálafræði, þar sem óformlegir hópar voru stofnaðir samhliða námskeiðum. Gengið er út frá hugmyndum um að háskólanemar í dag séu innfæddir netverjar, og markmiðið var að efla sjálfsmynd þeirra og starfssamfélag, með hliðsjón af kenningum um aðstæðubundið nám og starfssamfélög. Rannsóknin er byggð á vettvangsglósum höfundar og viðtölum við nemendur sem voru í námskeiðunum sem greind voru með aðferðum orðræðugreiningar. Niðurstöður sýna að starfssamfélag efldist í gegnum hinn rafræna vettvang og jók um leið sjálfstraust nemenda í skólastofunni. Því fylgdu aukin þægindi og minna álag að fylgjast með umræðum á Facebook en á formlegum kennslumiðlum og nemendur töldu sig eiga í betri samskiptum við bæði kennara og samnemendur. Nemendur töldu þó að Facebook umræður væru lítil viðbót við formlegt nám, en þeim mun gagnlegri til að tengja viðfangsefnið við daglegt líf. Vísbendingar eru um að breytinga sé þörf á umræðukerfum formlegri kennsluvefja, eigi þeir að nýtast. Frekari rannsókna er enn fremur þörf til að skoða hvort samfélagsmiðlar bæti nám umfram það að styrkja starfssamfélag nemenda.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
12_ryn_arsrit_2016.pdf 294.9Kb PDF Skoða/Opna Heildartexti

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta