Útdráttur:
|
Í byrjun 15. aldar hefur Svartidauði kvistað niður landslýðinn svo innan við helmingur lifir eftir af þjóðinni. Unglingspilturinn Natan er einn eftir af munkum Þykkvabæjarklausturs. Í rás sögunnar slæst Natan í fræga för með Birni Jórsalafara til Jerúsalem. Samtímis er ferðast um hugarheim fólksins í gegnum bókmenntir tímabilsins. Jafnframt er, eins og í fyrri bókum bálksins, dvalið við nútímann og hann skoðaður í aldarspegli hins liðna, og öfugt. Þriðja bókin í hinum frumlega og metnaðarfulla sagnabálki Péturs, sem hann kallar Skáldsögu Íslands. Fyrri bækurnar, Myndin af heiminum og Leiðin til Rómar, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. |