Útdráttur:
|
Falleg leikkona með vafasama fortíð finnst myrt inni á einkaskrifstofu hæstaréttardómara. Upptökur úr öryggismyndavélum byggingarinnar sýna dómarann og hina myrtu ganga saman inn í hús Hæstaréttar skömmu fyrir morðið. Í yfirheyrslum lögreglunnar segist dómarinn hins vegar hafa setið í biluðum bíl órafjarri skrifstofu sinni á sama tíma. Hann leitar til lögfræðingsins og kjarnakonunnar Stellu Blómkvist og nú reynir á hana að komast til botns í málinu. Stella Blómkvist er klár, sjálfstæð, úrræðagóð og kallar ekki allt ömmu sína en lendir iðulega upp á kant við góðkunningja sína, lögregluna. Æsispennandi sakamálasaga eftir dularfyllsta rithöfund landsins. |