Útdráttur:
|
Dýralæknir er sendur austur á firði til að skoða aðstæður hjá fiskeldisfyrirtæki, bifvélavirki í litlu þorpi missir tökin á lífi sínu, leiðsögumaður á miðjum aldri þarf að horfast í augu við skelfilegan atburð úr æsku og fornleifafræðingur rannsakar nýfundin mannabein. Allir þræðir fléttast saman í atburðarás sem tekur óvænta stefnu þar sem persónur sögunnar þurfa að takast á við flókinn og grimman veruleika. Óbundið slitlag er önnur skálsaga Sigurjóns Bergþórs Daðasonar en fyrsta skáldsaga hans, Hendingskast, hlaut afar lofsamlega dóma. |