Útdráttur:
|
Mýrin er víðáttumikil auðn, þakin gráum kræklóttum gróðri. Í eina tíð voru guðunum hér færðar mannfórnir og sagan segir að enn þann dag í dag hverfi menn sporlaust í þessu votlendi. Nathalie Ström hefur snúið aftur á bernskuslóðir sínar til þess að vinna að doktorsritgerð um mýrlendi. Fljótlega kemur í ljós að erindi hennar er annað og persónulegra. Þegar lík finnst í mýrinni gefst Nathalie – og lögreglunni – tilefni til þess að sökkva sér ofan í fortíðina. Gamalt óréttlæti, átakanlegar uppgötvanir og djúpt grafin leyndarmál koma upp á yfirborðið, bæði í mýrinni og í minningum. Fórnarmýrin var eitt eftirsóttasta handritið á Bókasýningunni í London árið 2017 og kemur nú út um allan heim. Susanne Jansson hefur með sinni fyrstu bók skrifað magnaðan krimma, bæði um þær sögur sem við segjum sjálfum okkur til að lifa af og eins hvað fær venjulegt fólk til að fremja morð. |