#

Effect of improved design of wholesale EPS fish boxes on thermal insulation and storage life of cod loins – simulation of air and sea transport

Skoða fulla færslu

Titill: Effect of improved design of wholesale EPS fish boxes on thermal insulation and storage life of cod loins – simulation of air and sea transportEffect of improved design of wholesale EPS fish boxes on thermal insulation and storage life of cod loins – simulation of air and sea transport
Höfundur: Björn Margeirsson 1979 ; Lauzon, Hélene L. ; Kolbrún Sveinsdóttir ; Eyjólfur Reynisson 1977 ; Hannes Magnússon 1952 ; Sigurjón Arason ; Emilía Martinsdóttir 1949
URI: http://hdl.handle.net/10802/1505
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 08.2010
Ritröð: Skýrsla Matís ; 29-10
Efnisorð: Frauðplast; Flutningar; Þorskhnakkar; Ferskleiki; Geymsluþol; Skemmdarbakteríur
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Enska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Markmið tilraunanna var að rannsaka hve vel tvær tegundir frauðkassa
verja þorskhnakkastykki fyrir dæmigerðu hitaálagi í flugflutningskeðju
frá framleiðanda á norðanverðu Íslandi til kaupanda í Evrópu. Notast var
við hitamælingar, skynmat, efna- og örverumælingar til að bera
frauðkassana saman og kanna mikilvægi staðsetningar flakabita innan
kassa (horn og miðja). Að lokum var geymsluþol hnakkastykkja, sem
urðu fyrir dæmigerðu flugflutningshitaálagi, borið saman við geymsluþol
hnakkastykkja við stöðuga -1 °C geymslu sem er raunhæfur möguleiki
við gámaflutninga með skipum.
Nýi frauðkassinn, sem hannaður var með FLUENT varmaflutningslíkani,
reyndist betri en eldri kassinn með tilliti til varmaeinangrunar. Hitaálagið
á fyrsta degi tilraunarinnar olli því að hæsti vöruhiti í hornum hækkaði í
5.4 °C í eldri gerðinni en einungis í 4.5 °C í þeirri nýju. Munur milli
hæsta vöruhita í miðjum og hornum kassa var um 2 til 3 °C.
Með skynmati var sýnt fram á að geymsla í nýja frauðkassanum leiddi til
tveggja til þriggja daga lengra ferskleikatímabils og eins til tveggja daga
lengra geymsluþols m.v. geymslu í eldri frauðkassanum. Munurinn milli
kassanna var þó ekki staðfestur með efna- og örverumælingum.
Staðsetning innan kassa (horn og miðja) hafði ekki marktæk áhrif á
niðurstöður skynmats og var einungis um lítinn mun að ræða milli
staðsetninga í mælingum á TVB-N og TMA.
Hermun flug- og sjóflutnings (hitasveiflur og stöðugur hiti) leiddi í ljós að
fyrir vel forkælda þorskhnakka má vænta eins til fimm daga lengra
ferskleikatímabils og um þriggja til fimm daga lengra geymsluþols í vel
hitastýrðum sjóflutningi miðað við dæmigerðan flugflutningsferil frá
Norðurlandi. Þar sem sjóflutningur frá Íslandi tekur oft um fjórum til
fimm dögum lengri tíma en flugflutningur (háð m.a. vikudegi og
staðsetningu vinnslunnar) sýnir þetta að sjóflutningur er raunhæfur
möguleiki fyrir íslenska ferskfiskframleiðendur. Með notkun á nýju
frauðkössunum í flugflutningi á fiskurinn þó eftir lengra ferskleikatímabil
þegar hann kemst í hendur kaupenda erlendis en í skipaflutningi.
2. útgáfa, mars 2011
Í fyrri útgáfu skýrslunnar þótti ekki nógu skýrt koma fram að sá
umhverfishitaferill, sem líkja átti eftir sjóflutningi, miðaðist í raun við
nokkurn veginn bestu mögulegu aðstæður í sjóflutningskeðjum ferskra
fiskafurða frá Íslandi. Hitamælingar í kæliverkefnunum Hermun kæliferla
og Chill-on hafa sýnt fram á að forflutningi innanlands fylgir oft
óæskilegt hitaálag í nokkrar klst. hvort sem um er að ræða flug- eða
sjóflutningskeðjur. Til þessa hitaálags var tekið tillit í tilfelli
flugkeðjunnar en ekki sjóflutningskeðjunnar í fyrstu útgáfu skýrslunnar.
Mest áhersla var á lengd geymsluþols í fyrri útgáfu skýrslunnar en bætt er
við umfjöllun um ferskleikatímabil í nýrri útgáfu hennar.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
29-10-Effect-of ... -boxes_EndurbMars_2011.pdf 693.5Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta