#

Virðiskeðja íslensks gámafisks til Bretlands

Skoða fulla færslu

Titill: Virðiskeðja íslensks gámafisks til BretlandsVirðiskeðja íslensks gámafisks til Bretlands
Höfundur: Jónas R. Viðarsson ; Sveinn Margeirsson
URI: http://hdl.handle.net/10802/1502
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 04.2010
Ritröð: Skýrsla Matís ; 14-10
Efnisorð: Gámafiskur; Virðiskeðja; Gæði; Rekjanleiki; Úrbætur
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Íslenska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Skýrsla þessi greinir frá framgangi og niðurstöðum verkefnisins „virðiskeðja íslensks gámafisks
til Bretlands“ sem styrkt er af AVS sjóðnum. Markmið verkefnisins er að stuðla að úrbótum í
virðiskeðju gámafisks með það að markmiði að auka gæði og verðmæti afurðanna.
Í fyrsta hluta verkefnisins er gerð tölfræðileg úttekt á því hvort verð og gæði gámafisks fari
saman, en niðurstöður úr þeirri greiningu benda til þess að framboð hafi ráðandi áhrif á fiskverð
og að áhrif gæða falli þar algjörlega í skuggann. Ein meginforsenda þess að unnt sé að hvetja til
úrbóta í virðiskeðju gámafisks er að hægt sé að sýna fram á að aukin gæði hafi í för með sér
fjárhagslegan ávinning. Því voru framkvæmdar tilraunir með að auka upplýsingagjöf um
væntanlegt framboð, auk þess sem bætt var við þær upplýsingar sem fylgdu afla inn á gólf
uppboðsmarkaðanna. Þetta var gert í þeirri von að það ýtti undir meðvitund kaupenda um gæði
og það myndi hafa jákvæð áhrif á fiskverð. Þessi tilraun bar hins vegar ekki tilætlaðan árangur.
Það er mat verkefnisaðila að lykillinn að því að auka gæði og verðmæti gámafisks sé að vekja
meiri áhuga meðal seljenda jafnt sem kaupenda á gæðum. Þannig verði kaupendur frekar
reiðubúnir að greiða hærra verð fyrir bestu gæðin og því skapist markaðstengdur hvati meðal
seljenda á að afhenda aðeins bestu mögulegu gæði. Með það að markmiði stóðu verkefnisaðilar
fyrir innleiðingu gæðamats við flokkun fisks á mörkuðunum í Bretlandi og er vonast til að það
muni nýtast kaupendum við að greina hvaða útflytjendur standi sig best. Einnig var opnuð
vefsíða www.matis.is/gamafiskur sem hefur það markmið að miðla upplýsingum til allra í
virðiskeðju gámafisks um þau málefni sem líkleg eru til að hafa áhrif á gæði og verðmæti.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
14-10-1774-lokaskyrsla.pdf 7.570Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta