#

Optimal storage conditions for fresh farmed tilapia (Oreochromis niloticus) fillets

Skoða fulla færslu

Titill: Optimal storage conditions for fresh farmed tilapia (Oreochromis niloticus) filletsOptimal storage conditions for fresh farmed tilapia (Oreochromis niloticus) fillets
Höfundur: Emilía Martinsdóttir 1949 ; Odoli, Cyprian Ogombe ; Lauzon, Hélene L. ; Kolbrún Sveinsdóttir ; Hannes Magnússon 1952 ; Sigurjón Arason ; Ragnar Jóhannsson
URI: http://hdl.handle.net/10802/1492
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 12.2009
Ritröð: Skýrsla Matís ; 38-09
Efnisorð: Geymsluþol; QIM; Hekluborri; Loftskiptar umbúðir
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Enska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Tilgangur tilraunanna var að finna bestu geymsluaðstæður fyrir fersk tilapíuflök
með því að ákveða geymsluþol með skynmati, örverutalningum og eðlis- og
efnafræðilegum mælingum. Nílartilapía (Oreochromis niloticus) alin í
endurnýtanlegu vatnshringrásarkerfi var flökuð og pökkuð í 100% lofti og
loftskiptum pakkningum 50% CO2: 50% N2 MA fyrir geymslu við 1°C og -1°C.
Lýst er þróun QIM-einkunnaskala og skynmatseiginleikum ferskra og soðinna
tilapíuflaka og notkun skalans í geymsluþolstilraun. Línulegt samband fannst
milli gæðastuðuls og geymslutíma (r > 0.93) fyrir alla geymsluhópa.
Niðurstöður skynmats og örverutalninga sýndu að flök sem pakkað var í lofti
höfðu geymsluþol 13-15 daga við 1°C og 20 daga við -1°C. Við lok geymsluþols
í loftpakkningum var heildarörverufjöldi og fjöldi pseudomonads örvera log 7
CFU/g í holdi. Í flökum í loftskiptum pakkningum var lagfasi lengri og
heildarfjöldi örvera var undir log 4 CFU/g eftir 27 daga geymslu bæði við 1°C
og -1°C. Samt sem áður höfðu loftskiptar aðstæður slæm áhrif á lit flaka skömmu
eftir pökkun en litur flaka hefur veruleg áhrif á val kaupenda. Efnafræðilegar
mælingar eins og TVB-N og TMA voru ekki góður mælikvarði á skemmd
tilapiuflaka. Bestu geymsluaðstæður fyrir tilapíuflök er pökkun í lofti og geymsla
við stöðugt lágt hitastig -1°C. Skýrsla þessi er byggð á helstu niðurstöðum úr
meistaraprófsverkefni Cyprian Ogombe Odoli.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Skyrsla_38-09.pdf 1.951Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta