Titill: | Undesirable substances in seafood products – results from the Icelandic marine monitoring activities year 2008Undesirable substances in seafood products – results from the Icelandic marine monitoring activities year 2008 |
Höfundur: | Hrönn Ólína Jörundsdóttir ; Kristín Hauksdóttir ; Desnica, Natasa ; Helga Gunnlaugsdóttir |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1479 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 05.2010 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 16-10 |
Efnisorð: | Sjávarfang; Vöktun; Díoxín; PCB; Varnarefni; PBDEs |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Enska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Árið 2003 hófst, að frumkvæði sjávarútvegsráðuneytisins, vöktun á
óæskilegum efnum í sjávarafurðum, bæði afurðum sem ætlaðar eru til manneldis sem og afurðum til lýsis- og mjöliðnaðar. Tilgangurinn með vöktuninni er að meta ástand íslenskra sjávarafurða með tilliti til magns aðskotaefna. Gögnunum sem safnað er í vöktunarverkefninu verða einnig notuð í áhættumati og til að byggja upp gagnagrunn um aðskotaefni í íslensku lífríki. Umfjöllun um aðskotaefni í sjávarafurðum, bæði í almennum fjölmiðlum og í vísindaritum, hefur margoft krafist viðbragða íslenskra stjórnvalda. Nauðsynlegt er að hafa til taks vísindaniðurstöður sem sýna fram á raunverulegt ástand íslenskra sjávarafurða til þess að koma í veg fyrir tjón sem af slíkri umfjöllun getur hlotist. Ennfremur eru mörk aðskotaefna í sífelldri endurskoðun og er mikilvægt fyrir Íslendinga að taka þátt í slíkri endurskoðun og styðja mál sitt með vísindagögnum. Þetta sýnir mikilvægi þess að regluleg vöktun fari fram og að á Íslandi séu stundaðar sjálfstæðar rannsóknir á eins mikilvægum málaflokki og mengun sjávarafurða er. Þessi skýrsla er samantekt niðurstaðna vöktunarinnar árið 2008. Mat á ástandi íslenskra sjávarafurða með tilliti til aðskotaefna er langtímaverkefni og verður einungis framkvæmt með sívirkri vöktun. Á hverju ári er því farið vandlega yfir hvaða gögn vantar og þannig stefnt að því að fylla í eyðurnar. Árið 2008 voru mæld: dioxin, dioxinlík PCB og bendi PCB efni, PBDEs, PAH auk tíu mismunandi tegunda varnarefna, í sjávarafurðum sem ætlaðar eru til manneldis sem og afurðum til lýsis- og mjöliðnaðar. Gert var sérstak átak í mælingum á PBDE og PAH efnum árið 2008 og mældist mjög lítið af þessum efnum í íslenskum sjávarafurðum. Eins og áður mældist almennt lítið magn óæskilegra efna í íslensku sjávarfangi árið 2008. Olía og mjöl gert úr kolmunna á það þó til að vera nálægt eða yfirstíga leyfileg mörk fyrir viss efni. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
16-10-Voktun-2008.pdf | 446.3Kb |
Skoða/ |