dc.contributor.author | Hrefna Guðmundsdóttir | is |
dc.date.accessioned | 2011-08-19T14:48:48Z | |
dc.date.available | 2011-08-19T14:48:48Z | |
dc.date.issued | 2010-02 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/1465 | |
dc.description | Unnið fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. | is |
dc.description.abstract | Í skýrslu þessari greinir frá niðurstöðum könnunar á innleiðingu og framkvæmd laga nr. 92/2008
um framhaldsskóla sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Könnunin fór fram á tímabilinu 16. nóvember til 17. desember 2009. Markmið könnunarinnar var að afla upplýsinga um hvernig framhaldsskólum gengi að innleiða nýju lögin. Lögð var rík áhersla á að fá svör frá öllum framhaldsskólum. Rétt er að vekja athygli á að skv. bráðabirgðaákvæði framhaldsskólalaga hafa skólar frest til 1. ágúst 2011 til að uppfylla IV. og V. kafla laganna og var því ekki spurt um ákvæði þeirra kafla að undanskildum spurningum um skólanámskrá. Könnunin fór fram á Netinu og var spurningalisti sendur á netföng skólameistara og rektora 31 framhaldsskóla mánudaginn 16. nóvember 2010. Eftir tvær ítrekanir sem sendar voru á netföng þátttakenda 24. nóvember og 1. desember höfðu svör borist frá öllum forsvarsmönnum framhaldsskólanna nema fimm. Í þeim tilvikum komu í ljós tæknilegir örðugleikar við móttöku listans. Að lokum bárust svör frá öllum þátttakendum og var svörun því 100%. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands | is |
dc.subject | Framhaldsskólar | is |
dc.subject | Lög | is |
dc.subject | Skólastjórar | is |
dc.subject | Mennta- og menningarmálaráðuneytið | is |
dc.title | Könnun meðal skólameistara og rektora á innleiðingu og framkvæmd laga um framhaldsskóla | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_framhaldsskolar_loka_25.02.10.pdf | 177.7Kb |
Skoða/ |