Titill:
|
How economic perceptions shape environmental attitudes : A case study of the Dreki-Area oil explorationHow economic perceptions shape environmental attitudes : A case study of the Dreki-Area oil exploration |
Höfundur:
|
Elís Svavarsson 1988
;
Háskóli Íslands
;
Kolvetnisrannsóknarsjóður
|
URI:
|
http://hdl.handle.net/10802/14592
|
Útgefandi:
|
Háskóli Íslands, stjórnmálafræðideild
|
Útgáfa:
|
2017 |
Efnisorð:
|
Umhverfis- og auðlindafræði; Olíuleit; Umhverfismál; Efnahagsmál; Drekasvæði
|
Tungumál:
|
Enska
|
Tengd vefsíðuslóð:
|
https://orkustofnun.is/gogn/Kolvetnisrannsoknarsjodur/2017-How-Economic-Perceptions-Shape-Environmental-Attitutes-Final-report.pdf
|
Tegund:
|
Bók |
Gegnir ID:
|
991009387159706886
|
Athugasemdir:
|
Unnið með styrk frá Kolvetnisrannsóknarsjóði 2015 Lokaverkefni (MA) frá Háskóla Íslands |
Útdráttur:
|
Markmið verkefnisins var að kanna tengsl á milli upplifunar almennings af efnahagsástandinu og viðhorfa hans til umhverfismála, með olíuleitina á Drekasvæðinu til hliðsjónar. Enn fremur, að athuga hvernig almenn nálgun fólks að efnahagsupplýsingum, m.a. í gegnum fjölmiðla, getur haft áhrif á viðhorf til umhverfismála. Hönnun rannsóknarinnar tók mið af fyrri rannsóknum á sviðum stjórnmálafræði og sálfræði á hugtökunum ýfing (e. priming) og innrömmun (e. framing). Þátttakendum í rannsókninni var skipt upp í hópa sem lásu ólíkar tilbúnar fréttaskýringar um efnahagsástandið. Því næst svöruðu þeir spurningalista sem innihélt m.a. spurningar um olíuleitina. Niðurstöður benda til að upplifun á efnahagsástandi hafi áhrif á stuðning við olíuleitina á meðal þeirra sem telja sig ókunnuga olíuleitinni og mögulegum áhrifum hennar, en meðal ókunnugra, voru þeir sem upplifðu efnahagsástandið neikvætt, marktækt jákvæðari í garð olíuleitarinnar en þeir sem upplifðu efnahagsástandið neikvætt. Lestur á annaðhvort neikvæðum eða jákvæðum fréttaskýringum um efnahaginn hafði marktæk áhrif á stuðning við olíuleitina, en þeir sem lásu neikvæðar fréttaskýringar um efnahaginn voru jákvæðari í garð olíuleitarinnar en þeir sem lásu jákvæðar fréttaskýringar um efnahaginn. Niðurstöður sýna að fréttaflutningur af efnahagsmálum getur haft áhrif á afstöðu fólks til umhverfistengdra málefna. |