Titill: | Undesirable substances in seafood products. Results from the monitoring activities in 2007Undesirable substances in seafood products. Results from the monitoring activities in 2007 |
Höfundur: | Hrönn Ólína Jörundsdóttir ; Rabieh, Sasan ; Helga Gunnlaugsdóttir |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1458 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 09.2009 |
Efnisorð: | Sjávarfang; Vöktun; Díoxín; PCB; Snefilefni; Varnarefni |
Tungumál: | Enska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Árið 2003 hófst, að frumkvæði sjávarútvegsráðuneytisins, vöktun á óæskilegum
efnum í sjávarafurðum, bæði afurðum sem ætlaðar eru til manneldis sem og afurðum til lýsis- og mjöliðnaðar. Tilgangurinn með vöktuninni er að meta ástand íslenskra sjávarafurða með tilliti til magns aðskotaefna. Gögnin sem safnað er í vöktunarverkefninu verða einnig notuð í áhættumati og til að byggja upp gagnagrunn um aðskotaefni í íslensku lífríki. Umfjöllun um aðskotaefni í sjávarafurðum, bæði í almennum fjölmiðlum og í vísindaritum, hefur margoft krafist viðbragða íslenskra stjórnvalda. Nauðsynlegt er að hafa til taks vísindaniðurstöður sem sýna fram á raunverulegt ástand íslenskra sjávarafurða til þess að koma í veg fyrir tjón sem af slíkri umfjöllun getur hlotist. Ennfremur eru mörk aðskotaefna í sífelldri endurskoðun og er mikilvægt fyrir Íslendinga að taka þátt í slíkri endurskoðun og styðja mál sitt með vísindagögnum. Þetta sýnir mikilvægi þess að regluleg vöktun fari fram og að á Íslandi séu stundaðar sjálfstæðar rannsóknir á eins mikilvægum málaflokki og mengun sjávarafurða er. Þessi skýrsla er samantekt niðurstaðna vöktunarinnar árið 2007. Mat á ástandi íslenskra sjávarafurða með tilliti til aðskotaefna er langtímaverkefni og verður einungis framkvæmt með sívirkri vöktun. Á hverju ári er því farið vandlega yfir hvaða gögn vantar og þannig stefnt að því að fylla inn í eyðurnar. Árið 2007 voru mæld: dioxin, dioxinlík PCB og bendi PCB efni, PBDEs, PAH, auk þess tíu mismunandi tegundir varnarefna, auk þungmálma og annarra snefilefna, í sjávarafurðum sem ætlaðar eru til manneldis sem og afurðum til lýsis- og mjöliðnaðar. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skýrsla_28-09.pdf | 591.4Kb |
Skoða/ |