Titill: | Úttekt á aflífun í sauðfjársláturhúsum haustið 2008Úttekt á aflífun í sauðfjársláturhúsum haustið 2008 |
Höfundur: | Valur Norðri Gunnlaugsson 1973 ; Óli Þór Hilmarsson 1957 ; Ásbjörn Jónsson 1960 ; Guðjón Þorkelsson 1953 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1444 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 10.02.2009 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 05-09 |
Efnisorð: | Lambakjöt; Aflífun; Kæling; Sýrustig; Meyrni |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Útdráttur: | Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda ályktaði í apríl 2008 um að gerð
verði ítarleg úttekt á meðferð lambakjöts við slátrun, þá sérstaklega við aflífun og kælingu. Í greinargerð með ályktuninni sagði: „Fundurinn telur nauðsynlegt að könnuð verði hugsanleg áhrif þessara tveggja þátta á gæði kjötsins. Þegar skepnan er aflífuð með rafmagni er hætt við að skrokkar nái ekki að blóðrenna nægilega og eins er hætt við kæliherpingu með of snöggri kælingu eða frystingu. Matís ohf. gerði úttekt á ofangreindum þáttum haustið 2008 þar sem aflífun og kæliferlar í 6 sláturhúsum voru kannaðir, þar af var eitt hús heimsótt tvisvar. Fylgst með aflífun á 100 skrokkum í hverju húsi til að sjá verklag og taka út aðstöðu. Sýrustig og hitastig skrokka var mælt reglulega auk þess sem hitastig var mælt í kjötsölum sláturhúsanna. Skrokkar sem teknir voru í þessa rannsókn fylgdu skokkum í gegnum hefðbundið verkunarferli í hverju sláturhúsi fyrir sig en fyrir frystingu var hryggur fjarlægður og frystur sér. Hryggvöðvar voru svo notaðir í áferðarmælinga til að sjá mismunandi verlagsferla á milli sláturhúsa á meyrni kjötsins. Niðurstöður sýna að deyðingaraðferð hefur áhrif á dauðastirðnunarferlið. Það var komið mun lengra í skrokkum lamba í húsum sem nota „hausbak“ aðferðina en hjá húsum sem voru með hausaklemmu. Kælitími er greinilega of stuttur í sumum húsum. Þannig var sýrustig við frystingu hæst þar sem hann var stystur og vel yfir 6,0 í húsinu þar sem hann var einungis 4 tímar. Seigja kjöts var langminnst í hryggvöðva skrokka úr sláturhúsi þar sem notast var við haus-bak aflífunaraðferð, raförvun var notuð og mikil og löng kæling tryggði að kjötið var nálgast fullmeyrnað. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla__05-09.pdf | 1.235Mb |
Skoða/ |