Titill: | Lífvirk efni við lirfueldi lúðu og þorsksLífvirk efni við lirfueldi lúðu og þorsks |
Höfundur: | Jónína Þ. Jóhannsdóttir ; Rannveig Björnsdóttir ; Eydís Elva Þórarinsdóttir ; Kristjana Hákonardóttir ; Laufey Hrólfsdóttir |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1436 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 12.2008 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 38-08 |
Efnisorð: | Lífvirk efni; Ufsapeptíð; Þorsklifur; Lúðulifur; Ónæmisörvun; Bakteríuflóra |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Markmið verkefnisins var að leita leiða til þess að bæta lifun og gæði lirfa þorsks og lúðu
og nota til þess umhverfisvænar aðferðir. Markmiðið var einnig að opna fyrir möguleika á nýtingu ufsapeptíða sem aukið gæti verðmæti ufsa. Niðurstöður fyrra verkefnis í lúðueldi voru lofandi og bentu til þess að hentugast væri að meðhöndla lirfur með peptíðum í gegnum fóðurdýr auk þess sem nauðsynlegt væri að rannsaka frekar styrk meðhöndlunar. Í tengslum við verkefnið hefur verið þróuð og sett upp ný aðstaða í fóðurdýraræktun hjá Fiskey hf. til rannsókna á mismunandi meðhöndlunum fóðurdýra og stuðla þannig að auknum stöðugleika í framleiðslu lúðuseiða. Framkvæmdar hafa verið endurteknar tilraunir með lífvirkum efnum í ræktun hjóldýra og virtust þau þola vel ákveðinn styrk efnanna. Helstu niðurstöður tilrauna á fyrstu stigum þorskeldis benda til þess að meðhöndlun með ufsapeptíðum skili sér í góðum vexti, áberandi hraðari þroska innri líffæra og mun lægri tíðni galla í lirfum. Þó er ljóst að rannsaka þarf frekar áhrif mismunandi styrks meðhöndlunar. Sterkar vísbendingar eru um að IgM og lysozyme séu til staðar í þorsklirfum fljótlega eftir klak eða mun fyrr en áður hefur verið haldið fram auk þess sem meðhöndlun virtist örva framleiðslu þeirra. Meðhöndlun með ufsapeptíðum virðist ekki hafa áhrif á samsetningu bakteríuflóru lirfa en ákveðin tegundasamsetning greindist í meltingarvegi lirfa í kerjum þar sem lifun og gæði lirfa voru best. Gefur þetta vísbendingar um að ákveðin tegundasamsetning bakteríuflóru sé þorsklirfum hagstæð. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_38-08.pdf | 349.7Kb |
Skoða/ |