Útdráttur:
|
Markmiðið með þessu verkefni er að kanna veiðar uppsjávarfiskiskipa á makríl á Íslandsmiðum, gera formmælingar á fiskinum, koma með lausnir hvernig flokka megi makrílinn frá öðrum fiski um borð og hvernig vinnslu skuli háttað í frystiskipum. Greindur verður tækjakostur sem nauðsynlegur er við vinnsluna, einnig verða markaðir kannaðir fyrir makríl veiddan á Íslandsmiðum eftir árstímum.
Í þessum hluta var söfnun og greining makrílsýna sem safnað var sumarið 2008 gerð skil. Kynntar eru fyrstu niðurstöður verkefnisins sem snúa að stærð, þyngd, hauslengd, hæð og breidd, kyni, fitu-, vatns- og þurrefnisinnihaldi sýnanna. |